Gervigreind getur ekki komið í stað eða stýrt skólastarfi

Í dag, á alþjóðlegum degi menntunar, vekja samtök kennara og skólastjórnenda á Norðurlöndum athygli á mikilvægi menntunar fyrir lýðræði, jafnrétti og sjálfbæra þróun í heiminum, sér í lagi á tímum örrar tækniþróunar.
Sameinuðu þjóðirnar tileinka 24. janúar ár hvert Alþjóðlegum degi menntunar. Markmiðið er að fagna hlutverki menntunar í þágu friðar og þróunar. Samtök kennara og skólastjórnenda á Norðurlöndunum (NLS) sendu frá sér umræðugrein um gervigreind undir stjórn kennara og stafvæðingu í tilefni af deginum. Greinin er birt í heild hér fyrir neðan.
Gervigreind getur stutt við kennarastarfið – ekki komið í stað þess eða stýrt því
Í dag, á alþjóðlegum degi menntunar, er vakin athygli á mikilvægi menntunar fyrir lýðræði, jafnrétti og sjálfbæra þróun í heiminum. Við sem skrifum þessa grein erum fulltrúar fleiri en hálfrar milljónar kennara og skólastjórnenda á Norðurlöndunum. Við störfum á tímum örra tæknibreytinga þar sem þróun og notkun gervigreindar (AI) í skólastarfi mun hafa afgerandi áhrif á grunngildin í starfinu og það hvort okkur tekst að standa vörð um þau gildi.
Spurningin er ekki hvort þróunin eigi sér stað – heldur hvernig og á hvaða forsendum. Þess vegna verður rödd okkar að fá raunverulegt vægi þegar við veljum þær leiðir sem við ætlum að fara.
Við teljum að til að nýjar tæknilausnir geti aukið gæði kennslunnar sé nauðsynlegt að skilgreina og standa vörð um faglegt sjálfstæði skólastarfs. Það verður að vera í höndum kennara sem fagfólks að ákveða hvort, hvenær og hvernig á að nýta gervigreindarlausnir í kennslustarfi. Kennsla byggist á faglegri dómgreind, kennslufræðilegri hæfni og tengslum – þar sem tækni getur verið verkfæri, en aldrei útgangspunktur eða stýrandi viðmið.
Um leið teljum við aukna hættu á að mikilvæg ákvarðanataka um notkun tæknilausna fari fram fjarri kennslurýminu. Ef fagaðilar fá ekki sæti við borðið er hætt við að þróunin taki mið af öðrum sjónarmiðum og þörfum en þeim sem tengjast kennslu. Ákvarðanir um gervigreind og stafvæðingu í skólum verða að byggjast á rannsóknum og gagnreyndri reynslu og þær þarf að taka í samráði við fagfólk.
Eigi fagaðilar í kennslu að hafa raunveruleg áhrif þurfa þeir að hafa þekkingu og færni. Norðurlöndin þurfa því að tryggja, innan hvers lands, innviði og úrræði til að kennarar geti sótt sér rannsóknarmiðaða menntun og færniþróun. Stafvæðing í skólum getur ekki grundvallast á þeirri kröfu að kennarar sem fagstétt þurfi að sjá sjálfir um þessi umskipti. Kennarar verða að fá nægan tíma og stuðning við hæfi til að geta nýtt rannsóknir í verki og öðlast skilning og þekkingu á tækninni og hugsanlegum afleiðingum hennar.
Starfsþróun er einnig lykilatriði til að skólar standi jafnfætis. Ef gervigreindarkerfi eru ekki innleidd á sama hátt í öllu skólakerfinu, eða sveitarfélög og skólastjórar hafa mismunandi fjárhagslegar forsendur til að tryggja kennurum starfsþróun eða fjárfesta í tæknilausnum, er hætt við að innleiðing gervigreindarlausna ýti undir mismunun milli skóla og nemenda. Stjórnvöld á Norðurlöndunum verða því að tryggja fjármögnun og tilföng og samræmd viðmið til að koma í veg fyrir að stafræn þróun í skólastarfi leiði til mismununar.
Virk aðkoma fagaðila og aukin færni duga þó ekki til ein og sér. Til að hægt sé að nýta gervigreindarlausnir í skólastarfi þarf einnig að setja skýr mörk. Þannig má aldrei nýta slíka tækni til að vakta atferli og athafnir nemenda eða starfsfólks. Taka verður mið af persónuvernd og réttaröryggi við alla ákvarðanatöku. Reglugerðir Evrópusambandsins um gervigreind eru grundvallarvarnarkerfi sem þarf að vernda, en ekki veikja. Á því sviði þurfa Norðurlöndin að taka virkan þátt og standa vörð um persónuvernd, réttaröryggi og opinbert eftirlit. Norræna nálgunin á skólastarf og kennslu byggist á trausti og til að kjölfesta slíka nálgun þarf trausta lagaramma sem tryggja ábyrgð, gagnsæi og virðingu fyrir starfinu.
Í skóla framtíðarinnar er pláss fyrir jafnt bækur, penna, stafræn verkfæri og gervigreind. Tæknin getur verið dýrmætur stuðningur í kennslu – en breytir engu um ábyrgð kennarans. Tækni má aldrei koma í stað kennara eða verða skálkaskjól til að réttlæta niðurskurð. Tæknin getur sjálfvirknivætt umsýslu en aldrei sambönd, faglegt mat kennara eða kjarna kennslunnar. Nám og kennsla eru byggð á fjölda lykilþátta sem engin tækni getur leyst af hólmi: mannlegum samskiptum, samræðum, tungumáli og minni, leik, ritun og gagnrýninni hugsun. Ákvörðunin um það hvort og hvenær tæknilausnir, bók, pappír – eða allt þetta samtímis – eru rétta tækið í hverjum kennsluaðstæðum fyrir sig verður ævinlega í höndum kennarans.
Norðurlöndin hafa allar forsendur til að taka forystu við að innleiða gervigreindarverkfæri í skólum á jafnréttisgrundvelli og með kennara við stjórnvölinn. En til þess þarf pólitíska ábyrgð. Við hvetjum því stjórnvöld í okkar heimalöndum til að nálgast ákvarðanatöku um notkun gervigreindar við kennslu á heildstæðan hátt og í samræmi við kröfurnar sem við setjum fram í þessari grein. Móta þarf stefnu innan hvers lands þar sem fagaðilum í kennslu eru tryggð raunveruleg áhrif og kveðið er skýrt á um að tæknin eigi að styðja við – en aldrei stýra eða koma í staðinn fyrir – kennslu undir stjórn kennara.
Við erum hlynnt þróun á sviði gervigreindar og stafvæðingar. Við, sem fulltrúar aðildarsamtaka Norræna kennarasambandsins (Nordiska Lärarorganisationers Samråd (NLS)), teljum því einboðið að stjórnvöld eigi samstarf við okkur við hvers konar stefnumótun á þessu sviði.
