Gervigreind: Ekki gott þekkingartæki heldur hjálpartæki

Fréttir|24. janúar 2024

„Gervigreindin er komin til að vera og það er því um að gera að nota hana,“ segir Guðný Ósk Laxdal kennari nýjasta tölublaði Skólavörðunnar.

Við verðum að ýta undir gagnrýna hugsun og, eins og ég segi við mína nemendur, við verðum að vera klárari en gervigreindin. Kunna að nota hana en láta hana ekki plata okkur,“ segir Guðný Ósk Laxdal, enskukennari hjá Verzlunarskóla Íslands og stundakennari hjá HR og HÍ. Svava Jónsdóttir ræddi við hana. 

„Samt sem áður er mikilvægt að hafa í huga að nám á að vera fjölbreytt; einhver verkefni geta stuðst við gervigreind á meðan önnur geta það ekki. Ég myndi telja að það væri best fyrir kennara að byrja hreinlega bara að prófa að nota gervigreind. Byrja að fikta og sjá hvernig þetta virkar,“ segir Guðný Ósk þegar hún er spurð hvernig best sé fyrir kennara að taka fyrstu skrefin hvað varðar gervigreind

„Gervigreindin getur verið gífurlega gagnlegt hjálpartæki, bæði fyrir kennara og nemendur. Það eru ansi mörg forrit í boði og þetta getur verið yfirþyrmandi en það er um að gera að velja bara eina síðu og prófa þetta og prófa sig svo áfram.“

Við verðum að vera gagnrýnin á hvaðan upplýsingar koma, hvernig þær eru settar fram og hver er á bak við þær

„Ég mæli samt ekki með að treysta gervigreindinni 100%; hún er ekki að fara að búa til heilu verkefnin eða prófin fyrir þig án galla en það er hægt að nota hana til að koma með hugmyndir, meðal annars að verkefnum og skipulagi kennslu. Ég mæli til dæmis með að taka eitthvað sem þú ert að kenna, útskýra vel þínar aðstæður – svo sem hvaða nemendahóp þú kennir og á hvaða skólastigi - og gefa upp hversu löng kennslustundin er og sjá hvað hún segir. Alls ekki 100% en hjálpar mikið til við að byrja að skipuleggja.“

Guðný Ósk segir að gervigreindin sé ekki gott þekkingartæki heldur hjálpartæki. „Alveg eins og þegar við notum Google-leitarvélina til að hjálpa okkur þá er ekki hægt að treysta á að það sem kemur fyrst upp sé 100% rétt. Það eru til ansi mörg dæmi um að gervigreind skili afurð sem er ekki byggð á neinum gögnum og það virðist líka vera að þegar gervigreindina vantar upplýsingar þá búi hún þær bara til. Það er því mikilvægt að vera alltaf með aðra heimild fyrir þeim. Hún þekkir til dæmis ekki skáldsögur vel, annað en bara það sem hún finnur á netinu.“

Góð þekking á faginu nauðsynleg

Hvernig mun gervigreind breyta kennslu? Og verða ritgerðir úrelt fyrirbæri? „Mér finnst oft gott að bera þetta saman við það þegar Internetið varð til; í dag þurfa nemendur ekki að sitja með margar bækur opnar inni á bókasafni heldur er heimildaleit aðallega gerð á netinu. Ég held að gervigreindin sé bara næsta skref.

Varðandi ritun þá er áhuga­vert að pæla í hver tilgangur ritunar er. Það er þá helst að gefa nemendum tækifæri til að æfa sig í að koma hugsunum og skoðunum sínum frá sér á skipulagðan hátt. Það er hæfileiki sem mun ekki verða úreltur. Afurðin getur tekið breytingum en ég held að það muni alltaf verða mikilvægur hæfileiki.

Við verðum að ýta undir gagnrýna hugsun og, eins og ég segi við mína nemendur, við verðum að vera klárari en gervigreindin.

Það besta sem ég hef heyrt er að það að nota gervigreindina sé svipað og að nota reiknivél; mikilvægt hjálpartæki sem getur líka gert ýmsa vinnu fyrir þig. En myndir þú ráða endurskoðanda sem neitaði að nota reiknivél? Eða endurskoðanda sem kann bara á reiknivél? Ég held að flestir svari báðum spurningum neitandi sem sýnir okkur að það er gott að kunna á hjálpartæki nútímans en líka mikilvægt að hafa góða þekkingu á faginu.“

Guðný Ósk er á því að auka þurfi kennslu í gagnrýnni hugsun. „Eins mikið og gervigreindin getur hjálpað okkur þá er hún líka tæki sem er hægt að nota gegn okkur. Í dag er mjög auðvelt að búa til myndir sem hægt er að nota í fréttir sem eru ekki byggðar á neinu. Það er hægt að stela röddum og einkennum fólks og nota. Í raun má ekki trúa neinu sem maður sér núna á netinu nema það séu tvær til þrjár aðrar heimildir fyrir því. Við verðum að vera gagnrýnin á hvaðan upplýsingar koma, hvernig þær eru settar fram og hver er á bak við þær.“


Spyrjið gervigreindina um ráð

„Ég held að gervigreindin verði mun aðgengilegri á næstu mánuðum og verði hluti af forritunum sem við notum dags daglega. Það mun leiða til þess að vinnumarkaðurinn geri ákveðna kröfu um að starfsfólk kunni að nota gervigreind sem hjálpartæki; geti notað hana til að vinna verkefni hraðar.

Og öll verkefnavinna mun verða hraðari. Að búa til kynningu með glærum mun til dæmis taka styttri tíma og í skólum munu nemendur fá styttri tíma til að vinna verkefni þar sem þau hafa núna tæki og tól til að auðvelda þeim vinnuna.

Gervigreindin er komin til að vera og það er því um að gera að nota hana. Við verðum að ýta undir gagnrýna hugsun og, eins og ég segi við mína nemendur, við verðum að vera klárari en gervigreindin. Kunna að nota hana en láta hana ekki plata okkur. Samt sem áður er mikilvægt að hafa í huga að nám á að vera fjölbreytt og einhver verkefni geta stuðst við gervigreind á meðan önnur geta það ekki. Ég hvet alla til að byrja að fikta. Og ef þið eruð með áhyggjur af svindli eða verkefnum: Einfaldlega nýta tækifærið og breyta þeim. Og ef þið hafið ekki hugmynd um hvernig - spyrjið gervigreindina um ráð.“

 


Guðný Ósk Laxdal starfar sem enskukennari við Verzlunarskóla Íslands og stundakennari við HR og HÍ. Auk þess situr Guðný Ósk í stjórn Félags enskukennara á Íslandi og er varaformaður Samtaka tungumálakennara á Íslandi.

Síðan í vor hefur hún staðið fyrir vinnustofum um gervigreind fyrir FEKÍ og STÍL ásamt Geir Finnssyni, enskukennara í MÁ. Þau hafa einnig verið með fræðsluerindi um notkun gervigreindar í kennslu fyrir ýmis fagfélög og skóla þar sem þau leiðbeina kennurum við að byrja að nota gervigreind.

Svava Jónsdóttir ræddi við Guðnýju Ósk Laxdal í nýjasta tölublaði Skólavörðunnar.