Gerum betur

Fréttir|23. febrúar 2022

Yfirlýsing frá stjórn Kennarasambands Íslands.

Frétt á vef Kennarasambands Íslands frá síðastliðnum föstudegi hefur vakið mikla athygli og umtal en þar var sagt frá því að Dalvíkurbær hefði verið fundinn sekur um að standa með ólöglegum hætti að uppsögn kennara sem óumdeilt var að hafði löðrungað nemanda. Þessi frétt, sem birtist á vef sambandsins, stóðst ekki þær kröfur sem við viljum gera til okkar.

Skóli er vettvangur sem fær til úrlausnar mörg af þyngstu vandamálum samfélagsins og skortir oft þær bjargir sem duga. Við erfiðar aðstæður er óumflýjanlegt að upp komi flókin og erfið mál. Við slíkar aðstæður koma upp mistök.  Bætt starfsumhverfi og aukinn stuðningur annarra kerfa við skólakerfið er eina langtímalausnin á þeim vanda. Á því bera yfirvöld ábyrgð. Allir innan hvers skólasamfélags bera þó líka persónulega ábyrgð. Mikilvægur þáttur í því að standa undir slíkri ábyrgð er að viðurkenna það þegar okkur verður á og leita leiða til að gera betur.

Í málinu sem um ræðir var viðkomandi kennara gert ókleift að standa undir ábyrgð sinni og bæta sig vegna þess að sveitarfélagið gerði þau mistök að brjóta mikilvæga grundvallarreglu og bregðast við með hætti sem stangaðist á við lög. Það er ótækt í viðkvæmum málaflokki. Af því þarf sveitarfélagið að læra.

Þegar Kennarasamband Íslands fjallaði um málið á vef sínum var vakin athygli á þessu en um leið var vitnað í dóminn og sagt frá atvikum eins og þau voru færð til bókar af hálfu sveitarfélagsins og kennarans. Það hefðum við ekki átt að gera enda skiptu þær lýsingar engu máli um grundvallaratriði málsins en drógu einmitt athygli að barni. Það átti ekki að gera. Á því biðjumst við afsökunar. Af því munum við læra.

Hófsemd og stilling í erfiðum málum skiptir máli. Við verðum að taka viðvörunarljósin alvarlega og styðja við öryggi og velferð þeirra sem í skólunum starfa. Við viljum standa vörð um samfélag sem grundvallast á sanngjörnum leikreglum, virðingu og reisn.

Við getum öll gert mistök. Við getum öll þurft stuðning. Við getum öll gert betur fáum við tækifæri til þess. Við heitum því að það mun Kennarasamband Íslands gera.

Stjórn Kennarasambands Íslands