Gerður Kristný, Salvör og Ásmundur Einar flytja félagsmönnum KÍ boðskap

Ekkert verður af Skólamálaþingi þetta haustið en þess í stað flytja Gerður Kristný rithöfundur, Salvör Nordal, umboðsmaður barna, og Ásmundur Einar Daðason erindi um velferð og vellíðan barna og ungmenna - en það er einmitt yfirskriftin sem átti að vera á Skólamálaþingi 2020.
Alþjóðadagur kennara er haldinn hátíðlegur um heim allan í dag.
Á ári hverju hefur Skólamálaráð Kennararasambands Íslands staðið fyrir skólamálaþingi. Í ár er ekki um að ræða hefðbundið málþing heldur voru þrír einstaklingar beðnir um að taka upp erindi þar sem yfirskriftin er Velferð og vellíðan barna og ungmenna. Ávörp þeirra Ásmundar Einars Daðasonar barnamálaráðherra, Gerðar Kristnýjar rithöfundar og Salvarar Nordal, umboðsmanns barna má finna hér fyrir neðan.
Ávarp Gerðar Kristnýjar rithöfundar
Ávarp Salvarar Nordal, umboðsmanns barna
Ávarp Ásmundar Einars Daðasonar barnamálaráðherra
Við óskum kennurum og skólafólki til hamingju með daginn.