Gera alvarlegar athugasemdir við áform um sameiningu framhaldsskóla

Fréttir|12. maí 2023

„Félag framhaldsskólakennara gerir alvarlegar athugasemdir við áform ráðuneytis menntamála og stýrihóps á þess vegum um sameiningar fjölmargra skóla og hagræðingar í framhaldsskólakerfinu." Félagið hvetur ráðherra til að gera alvöru úr samráði við alla hagaðila.

Svo segir í yfirlýsingu sem fulltrúafundur Félags framhaldsskólakennara gaf frá sér í dag, 12. maí. Hér fyrir neðan má sjá yfirlýsinguna í heild. 

Yfirlýsing fulltrúafundar Félags framhaldsskólakennara þann 12. maí 2023

Félag framhaldsskólakennara fagnar aukinni umræðu í samfélaginu um eflingu framhaldsskólastigsins. Sérstaklega vill félagið þar nefna áherslur ráðuneytisins um eflingu 1. þreps stuðnings við nemendur sem felast einmitt í að styðja við starfsumhverfi nemenda og kennara og að hlúð verði að starfsháttum, starfsaðstæðum, skólaumhverfi og skólamenningu. Sömuleiðis fagnar Félag framhaldsskólakennara áformum mennta- og barnamálaráðherra um eflingu starfsnáms eins og þau voru birt á sérstökum kynningarfundi 2. mars sl. Þar var birt framkvæmdaáætlun um eflingu starfsnáms í alls tíu framhaldsskólum um allt land á næstu árum.

Fulltrúafundur Félags framhaldsskólakennara, haldinn þann 12. maí 2023, gerir hins vegar alvarlegar athugasemdir við áform ráðuneytis menntamála og stýrihóps á þess vegum um sameiningar fjölmargra skóla og hagræðingar í framhaldsskólakerfinu. Fulltrúar fundarins eru sammála um að svo virðist sem það samráðsferli sem kynnt hefur verið beri öll merki sýndarsamráðs um áform sem þegar hafi verið ákveðin. Eins og sjá má í Greinargerð um húsnæðisþörf í framhaldsskólum 2023-2033 og kynningarefni stýrihópsins er framsetning á gögnum og forsendum fyrir sameiningum og hagræðingu innan framhaldsskólanna villandi því hún byggir á hæpnum gögnum og er til þess gerð að lita þróun nemendafjölda sterkari litum en forsendur eru fyrir.

  • Ekki er horft nægilega langt fram eða aftur í tímann. Fyrirsjáanlegt er að eftir 2033 fjölgi nemendum umtalsvert í framhaldsskólum. Einnig hafa viðlíka sveiflur í nemendafjölda og skiptingu milli bóknáms og starfsnáms átt sér stað áður.
  • Ekki virðist litið til þess að stór hluti nýrra starfsnámsnemenda er eldri en 22 ára.
    • Þessir nemendur hefja sitt nám gjarnan á bóknámsbrautum.
    • Þessir nemendur eru gjarnan nemendur sem hafa horfið of snemma frá námi en vilja koma aftur inn og þá oft í starfsnám.
  • Aukið hlutfall nemenda af erlendum uppruna til framtíðar virðist ekki tekið inn í myndina.
  • Litið er fram hjá mikilli og öflugri þróunarvinnu í framhaldsskólum sem hefur átt sér stað, og á sér stað, og þeirri staðreynd að skólar eru hver fyrir sig í sífelldri aðlögun að veruleika nemenda.
  • Mjög villandi er að draga upp starfsnám og bóknám sem andstæður.
  • Í kynningum stýrihópsins er látið í veðri vaka að áform stýrihópsins um sameiningar hafi hlotið blessun skólamálanefndar Félags framhaldsskólakennara; svo er alls ekki.

Fulltrúafundur Félags framhaldsskólakennara hvetur ráðherra, mennta- og barnamálaráðuneytið og stýrihóp um eflingu framhaldsskóla til þess að standa faglegar að málum, gera alvöru úr samráði við alla hagaðila og gefa þeirri vinnu þann tíma sem nauðsynlegur er. Af þeirri vinnu getur margt gott hlotist en flas og flýtir er engum til hagsbóta; það hefur framhaldsskólinn svo sannarlega fengið að reyna.

Hér má finna yfirlýsinguna í heild.