Gengið verði án tafar frá kjarasamningum

Fréttir|13. febrúar 2025

Um fjörutíu kennarar við Egilsstaðaskóla fóru á fund sveitarstjórnar Múlaþings á dögunum og þrýstu á um gerð kjarasamnings KÍ við sveitarfélögin.

„Staða okkar, félagsfólks í KÍ, er óásættanleg. Ítrekað er leitað leiða til að koma í veg fyrir verkfallsaðgerðir, en það virðist hvorki vera nægur vilji til þess að klára samninga né standa við gefin loforð."

Þetta er meðal þess sem kemur fram á áskorun kennara við Egilsstaðaskóla sem afhent var sveitarstjórn Múlaþings í gær. 

Með þessu vildu kennararnir setja þrýsting á sveitarstjórnina að beita sér fyrir því að samningar náist milli Kennarasambandsins og Sambands íslenskra sveitarfélaga. 

Jafnframt segir í áskoruninni: „Kröfur kennara eru skýrar og snúa fyrst og fremst að því að staðið verði við loforð stjórnvalda um jöfnun launa á milli markaða, loforð sem gefið var árið 2016. Vanefndir hafa haft mikil áhrif, þau áhrif að stór hluti fagmenntaðra kennara sjá hag sinn frekar í öðrum störfum samfélagsins þannig að ekki tekst að full manna stöður innan skólakerfisins."

Vanræksla menntunar í dag kostar okkur framtíðina. Við viljum að Múlaþing vaxi og dafni sem samfélag, en til að það geti orðið þarf að fjárfesta í því sem skiptir máli.

Áskorun kennara við Egilsstaðaskóla

Egilsstöðum, 12.2.2025 

Sveitarstjórnarfólk í Múlaþingi!

Kennarar við Egilsstaðaskóla skora á ykkur, kjörna fulltrúa, að beita ykkur fyrir því að gengið verði frá kjarasamningum við kennara án tafar. Sem aðilar að Sambandi íslenskra sveitarfélaga berið þið í sveitastjórn Múlaþings ábyrgð á því að taka ákvörðun um að kæra verkfallsaðgerðir kennara í stað þess að eyða orku og fjármagni í að ljúka við gerð kjarasamninga. Slíkar aðgerðir grafa undan þeim rétti sem félagsfólk KÍ hefur til verkfalls þegar illa gengur að semja um kaup og kjör.

Kennarar við Egilsstaðaskóla tóku þá ákvörðun ekki af léttúð, að samþykkja að fara í verkfall í byrjun febrúar. Það er erfið ákvörðun að taka slíkt skref, en þau voru enn þyngri skrefin inn í skólann aftur nýliðinn mánudagsmorgunn þegar búið var að dæma verkfallið ólöglegt.

Kröfur kennara eru skýrar og snúa fyrst og fremst að því að staðið verði við loforð stjórnvalda um jöfnun launa á milli markaða, loforð sem gefið var árið 2016. Vanefndir hafa haft mikil áhrif, þau áhrif að stór hluti fagmenntaðra kennara sjá hag sinn frekar í öðrum störfum samfélagsins þannig að ekki tekst að full manna stöður innan skólakerfisins.

Staða okkar, félagsfólks í KÍ, er óásættanleg. Ítrekað er leitað leiða til að koma í veg fyrir verkfallsaðgerðir, en það virðist hvorki vera nægur vilji til þess að klára samninga né standa við gefin loforð.

Vanræksla menntunar í dag kostar okkur framtíðina. Við viljum að Múlaþing vaxi og dafni sem samfélag, en til að það geti orðið þarf að fjárfesta í því sem skiptir máli.

Undir þetta skrifa kennarar í Egilsstaðaskóla