Gamla Kennarahúsinu verður skilað til ríkisins

Ákveðið var á nýliðnu þingi Kennarasambandsins að gamla Kennaraskólanum, sem áður hýsti starfsemi KÍ, verði skilað til ríkisins.
Kennarahúsinu við Laufásveg verður skilað til ríkisins. Þetta var ákveðið á 8. þingi Kennarasambandsins sem fram fór í síðustu viku. Húsið hefur staðið autt síðan í byrjun árs 2020 en þá flutti Kennarasambandið starfsemi sína í Borgartún 30. Þar með lauk nærfellt 30 ára veru KÍ í húsinu.
Kennarahúsið er vissulega fallegt að ytra sem innra byrði en vinnuaðstaðan þótti ekki lengur viðunandi og þá stenst húsið ekki kröfur um aðgengi fatlaðra.
Ríkisstjórn Íslands gaf kennarasamtökunumm húsið árið 1991 með þeim kvöðum að ef „gjafaþegi hættir starfsemi í húsinu mun ríkissjóður endurgreiða áfallinn kostnað vegna endurbóta og viðgerða á húseigninni". Hversu há sú upphæð verður liggur ekki fyrir á þessari stundu.
Jónína Hauksdóttir, varaformaður KÍ, segir gott að málið sé til lykta leitt enda ekki vel farið með félagsgjöld að reka tvær húseignir á sama tíma. Hún bætir við að kennurum þyki vænt um húsið enda mikil og merkilega saga því tengd.
Friðað hús
Hvað verður um Kennarahúsið á eftir að koma í ljós. Húsið var byggt árið 1908 og sama ár tók Kennaraskólinn til starfa í húsinu. Húsið var langt fyrir utan bæinn og fyrsta árið þurfti að bera vatn í húsið. Vatnssalernum var komið fyrir árið 1915 en það var ekki fyrr en 1923 að rafmagn var leitt í húsið og loks gátu nemendur lesið við rafmagnsljós.
Kennarahúsið er friðað að utan og þá mun Húsafriðunarnefnd hafa lagt til að herbergjaskipan fái að halda sér eins og kostur er.