Gagnlegar umræður og mikill samhljómur

Fréttir|23. október 2026

Fulltrúar úr stjórn Kennarasambands Íslands áttu í dag fund með þingflokki Viðreisnar um framtíð skólastarfs á Íslandi.

Fulltrúar úr stjórn KÍ og fulltrúar þingflokks Viðreisnar funduðu í húsnæði Kennarasambandsins í dag. Viðreisn var því fyrsti þingflokkurinn til þess að eiga samtal við KÍ um framtíð skólastarfs á Íslandi undir yfirskriftinni Blásum byr í seglin!

Magnús Þór Jónsson formaður KÍ var ánægður með fundinn: „Þetta voru gagnlegar umræður og mikill samhljómur um mikilvægi öflugs samtals um skólamál á víðum grunni. Það er mjög ánægjulegt að greina jákvæð viðbrögð við sýn KÍ og þessi fyrsti fundur okkar af sex við þingflokkana gefur sannarlega fyrirheit um betri tíð í samskiptum við þingmenn“

Á döfinni eru fundir með þingflokkum annarra stjórnmálaflokka, sveitarfélaga og annarra hópa. Enn eru að berast fundarbeiðnir svo óhætt er að segja að viðbrögð við kalli Kí um samfélagslegt samtal séu afskaplega góð!