Gæði tónlistarnáms mikil en tryggja þarf jafnt aðgengi

Fréttir|20. ágúst 2025

Formaður Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum segir nýja úttekt á starfsemi tónlistarskóla hérlendis fagnaðarefni. „Tónlistarskólinn er ekki eyland og möguleikar hans til að vaxa og dafna eru háðir því að þeir lykilaðilar sem mynda vistkerfi tónlistarmenntunar leggi, hver og einn, rækt við sitt hlutverk," segir Sigrún.

Nemendur og forráðamenn eru almennt ánægðir með starf tónlistarskóla og segja vilja kennara til umbóta og þróunar gagnvart náminu vera mikinn. Tónlistarkennarar telja að vinna þurfi í auknum mæli með sérþarfir nemenda, námskrá, kennsluhætti, nýliðun og auk þess sé tilefni til að endurskoða áfangapróf og framkvæmd þeirra. Nýliðun kennara er vaxandi áhyggjuefni og því miður eru biðlistar til staðar í meirihluta tónlistarskóla.

Áskoranir eru til staðar þegar kemur að því að tryggja jafnt aðgengi að tónlistarnámi, óháð staðsetningu, efnahag og bakgrunni.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í Úttekt á starfsemi tónlistarskóla á Íslandi sem birt var á vef mennta- og barnamálaráðuneytisins í fyrradag.

Úttektin er liður í aðgerðaáætlun menntastefnu og var markmið hennar að kanna gæði og skipan tónlistarnáms í viðurkenndum tónlistarskólum. Lagt var mat á starfsemi tónlistarskóla „með tilliti til inntaks og framkvæmdar tónlistarfræðslu á grundvelli laga um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla. Er þar m.a. horft til ákvæða laganna um aðalnámskrár, framsetningu markmiða og mats, kennsluáætlana og aðstöðu nemenda og kennara. Þá var meðal annars skoðuð stjórnun, innra starf, aðstaða, samskipti innan sem utan skóla, þjónusta við nemendur og starfsfólk ásamt þróunarstarfi og umbótum í skólastarfi. Á grundvelli þessa mats eru birtar ábendingar og tillögur um aðgerðir sem leitt geta til þess að tónlistarnám á Íslandi verði markvissara, skilvirkara og af betri gæðum,“ eins og segir á vef ráðuneytisins.

Úttektin er mikil að vöxtum enda hluti af gagnasöfnun um listmenntun svo stjórnvöld geti byggt á fullnægjandi upplýsingum við undirbúning rammalöggjafar um listfræðslu, þar sem m.a. væri kveðið á um tilgang listmennta (þar með talið tónlistarmenntunar), námskrárgerð, kennaramenntun, gæðaeftirlit, tengsl við almenna skólakerfið, fjármögnun og fleira.

Sigrún Grendal, formaður Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum (FT), segir það fagnaðarefni að búið sé að birta niðurstöður úttektar á starfsemi tónlistarskóla á Íslandi og að framkvæmd hennar hafi verið mikilvægt skref og vísar þar til annarrar aðgerðaáætlunar menntastefnu til 2030.

Sigrún fagnar því að stjórnvöld hafi sett rammalöggjöf um listfræðslu á dagskrá og vonar að þar með verði því verkefni loksins siglt í höfn, sem hefur verið á teikniborðinu alltof lengi, að heildarlög verði sett um tónlistarskólakerfið á Íslandi og þannig styrkari stoðum skotið undir starfsemi tónlistarskóla. Það er jú einu sinni þannig að vönduð löggjöf skiptir máli.

Til marks um nýtt upphaf

Niðurstöður úttektarinnar verða meðal umfjöllunarefna á árlegum svæðisþingum tónlistarskóla sem fram fara á fimm stöðum, hringinn um landið, á næstu vikum. Þingin eru haldin í samstarfi FT og Samtaka tónlistarskólastjóra (STS). Yfirskrift svæðisþinga þessa árs er: Meira í dag en í gær. Hvernig getum við sameinað kraftana, lært hvert af öðru og stuðlað að sjálfbærri framtíð tónlistarmenntunar og tónlistariðkunar í allri sinni fjölbreytni?

Svæðisþing tónlistarskóla hafa verið haldin árlega frá árinu 2003 og eru þau vettvangur um faglega umræðu um málefni tónlistarskólans, svo sem tónlistarnám og tónlistarkennslu, kennaramenntun og starfsþróun og hvaðeina annað í vistkerfi tónlistarmenntunar og tónlistarskóla.

„Ég ætla að leyfa mér að trúa því að fram undan sé spennandi skólaár og að áherslur og áform nýrrar ríkisstjórnar séu til marks um nýtt upphaf. Í þeim tillögum og ábendingum sem settar eru fram í úttektinni á starfsemi tónlistarskóla felast mörg brýn verkefni sem félagið hefur beitt sér fyrir um langt skeið og nú verða verkin vonandi látin tala!

Tónlistarskólinn er ekki eyland og möguleikar hans til að vaxa og dafna eru háðir því að þeir lykilaðilar sem mynda vistkerfi tónlistarmenntunar leggi, hver og einn, rækt við sitt hlutverk," segir Sigrún Grendal.

Tónlistarnemar úr Reykjavík, af Kraganum, Suðurlandi og Suðurnesjum fluttu tónlist í Salnum í Kópavogi.

Formaður FT segir brýnt að setja heildarlög um tónlistarskólakerfið og setja þannig styrkari stoð undir starfsemi tónlistarskólanna.

Helstu niðurstöður úttektarinnar

  • Nemendur og forráðamenn eru almennt ánægðir með starf tónlistarskóla og vilji kennara til umbóta og þróunar gagnvart náminu er mikill.
  • Nemendum sem þreyta próf í tónlistarskólum á Íslandi hefur fækkað um 22% á síðastliðnum fjórum árum.
  • Að jafnaði eru nemendur fjögur ár á grunnstigi en í aðalnámskrá er miðað við að nemendur eigi að geta lokið námi á þremur árum.
  • Biðlisti er til staðar í 64% tónlistarskóla og lengstur biðlisti er á píanó sem einnig er það hljóðfæri sem flestir tónlistarskólar bjóða upp á kennslu á.
  • Skapa þarf fleiri tækifæri til faglegs samráðs og samstarfs milli tónlistarskóla en tæplega 66% skólastjórnenda telja samstarf geta verið meira.
  • Skipulagt ytra gæðaeftirlit gagnvart tónlistarskólum er ekki virkt og nauðsynlegt er að skerpa á hlutverkum og ábyrgð á því sviði.
  • Aðalnámskrá liggur til grundvallar tónlistarnámi en um 41% skóla vinnur ekki eftir sérstakri skólanámskrá líkt og aðalnámskrá kveður á um.
  • Gæði náms eru almennt mikil og viðleitni kennara gagnvart því að ná árangri með nemendum sínum er eftirtektarverð.
  • Tónlistarskólar sem hafa verið viðurkenndir skv. lögum nr. 75/1985 uppfylla að mestu skilyrði laga en undantekningar birtast í erfiðleikum nokkurra skóla að viðhalda lágmarksfjölda nemenda.
  • Sérþarfir nemenda, námskrá, kennsluhættir, nýliðun og endurskoðun prófa eru þeir þættir sem tónlistarkennarar telja hvað helst að þurfi umbóta við.
  • Skólastjórnendur telja að í nánustu framtíð þurfi að horfa til þess að auka fjölbreytni í námsvali, bjóða upp á sveigjanlegri námsleiðir, efla aðgengi að námi og rækta samfélagsleg tengsl skóla.
  • Áskoranir eru til staðar gagnvart því að tryggja jafnt aðgengi að tónlistarnámi, óháð staðsetningu, efnahag eða bakgrunni.
  • Nýliðun kennara er vaxandi áhyggjuefni og mikill fjöldi hlutastarfa getur verið hindrun til að þróa og viðhalda faglegu starfi innan skóla.
  • Almenn afstaða til samræmdra áfangaprófa er sú að aukinn sveigjanleiki í námsmati sé nauðsynlegur til að treysta betur nemendamiðað nám þar sem áhugi nemenda sé í forgrunni.
  • Framlag sveitarfélaga til tónlistarskóla nemur nokkuð hærri upphæð en sem nemur launakostnaði þeirra.
  • Jöfnunarsjóðsframlög, sem ríkissjóður leggur til framhaldsnáms, hafa lækkað.
  • Samstarf við grunnskóla er víðtækt og 83% tónlistarskóla eru í virku samstarfi. Allir skólar á landsbyggðinni eru í samstarfi við grunnskóla.

Mennta- og barnamálaráðuneytið áformar að hefja vinnu á haustmánuðum við stefnumörkun og áætlunargerð í samstarfi við hagsmunaaðila með niðurstöður úttektarinnar til hliðsjónar.

 

Úttekt á starfsemi tónlistarskóla á Íslandi – pdf

 


Lilja Dögg Gunnarsdóttir, verkefnisstjóri hjá ARCUR, tónlistarkona og kennari, kynnir niðurstöður úttektarinnar fyrir gestum Svæðisþings tónlistarskóla á höfuðborgarsvæðinu og Vesturlandi á Grand Hótel Reykjavík, 21. ágúst 2025.