Gæði kennaranáms á Norðurlöndunum

„Er þá stóra spurningin hvort að það þyrfti að bæta við meiru starfsnámi í kennaramenntun hér á landi,“ skrifa Berglind Vala Valdimarsdóttir og Díana Snædís Matchett, um ferð sína á ráðstefnu kennaranema á vegum Norrænu kennarasamtakanna í Danmörku.
Við fórum á ráðstefnu í Danmörku ásamt öðrum kennaranemum frá Norðurlöndum. Þarna voru fulltrúar frá Íslandi, Danmörku, Svíþjóð, Noregi, Finnlandi, Færeyjum og Grænlandi. Þema ráðstefnunnar var Gæði í kennaranámi og voru ræddar hinar ýmsu hliðar kennaranáms og því tengdu. Ráðstefnan hófst seinni parts fimmtudags og kynnti þá hvert land fyrir sig hvað þeirra félag stæði fyrir og hvernig það aðstoðar kennaranema í sínu landi.
Á föstudeginum þá hittumst við aftur hjá Danmarks lærerforening og ræddum við hvernig kennsla á öllum skólastigunum er í hverju landi fyrir sig. Svo lögðum við af stað til að skoða tvö háskólasvæði hjá Københavns professionshøjskole. Við byrjuðum að skoða Campus Carlsberg. Þar stunda um 2.000 kennaranemar nám, ásamt nemum í hjúkrun, félagsvísindum og fleiru. Húsnæðið er frekar nýlegt og afar stórt. Skólastofur voru hvítar og daufar, minntu ekkert á kennslustofur eins og í venjulegum grunnskólum.
Fyrir framan Københavns professionshøjskole, Campus Frederiksberg.
Tekin var umræða þar um hvað löndin gefa hverjum háskólanema mikinn styrk til að stunda sitt nám. Kom þá í ljós að Ísland var eina landið sem lætur nema borga skólagjöld/innritunargjöld, en var það misjafnt eftir löndum hvað nemendur fengu mikinn styrk frá sínum heimaþjóðum. Eftir þessar umræður var haldið að Campus Frederiksberg við Nyelandsvej. Þar stunda bara kennaranemar nám og eru þeir um 700. Þetta húsnæði var mun minna og eldra en Campus Carlsberg, en mun heimilislegra og voru skólastofurnar mun hlýlegri og líkari þeim kennslustofum eins og við viljum starfa í.
Þegar þessum heimsóknum var lokið snérum við aftur til Danmarks lærerforening og ræddum við um það sem við sáum á þessum háskólasvæðum. Síðan var okkur skipt upp í hópa og ræddum við saman hvernig okkar draumaskóli væri útlítandi. Eftir þessar umræður sýndum við hvort öðru hvernig háskólinn í okkar heimalandi liti út og hvort að þeir væru allir svipaðir. Niðurstaðan var sú að þeir væru flestir gráir með stórum gluggum.

Hér má sjá ráðstefnuhópinn, fulltrúa kennaranema frá Norðurlöndunum.
Á laugardeginum ræddum við saman um hvernig starfsnámið væri í hverju landi fyrir sig og hvað góð kennaramenntun væri. Það sem vakti mesta athygli hjá okkur var að við hérna á Íslandi erum í litlu starfsnámi miðað við hinar Norðurlandaþjóðirnar. Þau fara strax á fyrsta ári að hjálpa til við kennslu á meðan við fáum eina viku til að fylgjast með kennslu. Er þá stóra spurningin hvort að það þyrfti að bæta við meiru starfsnámi í kennaramenntun hér á landi?
Við þurftum að fara áður en ráðstefnan kláraðist en var þessi ferð engu að síður ótrúlega lærdómsrík og skemmtileg.
Höfundar eru kennaranemarnir Díana Snædís Matchett og Berglind Vala Valdimarsdóttir, frá Magister við Háskólann á Akureyri.