Gæðamenntun rædd á ráðstefnu ETUCE

Fréttir|5. júlí 2022

Stuðningur við skólastarf, einkum kennara, efling kennaramenntunar og fjölgun kennara almennt er meðal umræðuefna á ráðstefnu sem Evrópsku kennarasamtökin (ETUCE) standa fyrir þessa dagana.

Mörg mikilvæg málefni eru til umræðu á ráðstefnu Evrópsku kennarasamtakanna (ETUCE) sem nú stendur yfir í Liegé í Belgíu. Yfirskrift ráðstefnunnar er Virkjum gæðamenntun (Mobilising for Quality Education) og eru áhersluatriðin í takti við yfirskriftina. 

Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, Jónína Hauksdóttir, varaformaður KÍ, og Anna María Gunnarsdóttir, fyrrverandi varaformaður KÍ, sitja ráðstefnuna fyrir hönd Kennarasambandsins. 

Meginþungi umræðna á ráðstefnunni snýst um hvernig styðja megi við skólastarf og þá sér í lagi kennarann svo gæðamenntun geti farið fram. Mikilvægi samfélagslegs samtals er þar áréttað og algera nauðsyn þess að fjármagn til skólastarfs tryggi starfsaðstæður kennara og nemenda. Auk þess verður lögð fram áætlun um það hvernig efla megi kennaramenntun og fjölga útskrifuðum kennurum. Þá er staðan í evrópskum skólum vegna átakanna í Úkraínu til umræðu. 

Að venju eru norrænu kennarasamböndin (NLS) í miklu samtali og samstarfi á vettvangi evrópskra kennara með það að markmiði að hámarka þann árangur sem slíkar ráðstefnur geta haft fyrir skólastarf á heimavelli enda aðstæður gríðarlega ólíkar í löndum álfunnar og því þarf hvert land að horfa til sinna aðstæðna þegar kemur að því verkefni að virkja gæðamenntun heima fyrir.

Hægt er að kynna sér ráðstefnuna á þessari slóð.