Fyrstu kosningarnar í nýju kosningakerfi KÍ

Fréttir|7. mars 2014

Rafrænar kosningar til stjórnar hjá Félagi leikskólakennara og Félagi stjórnenda í leikskólum hófust í gær. Kosið er í nýju kosningakerfi KÍ.

Kosningarnar fara fram á „Mínum síðum“ og þurfa kjósendur að skrá sig með Íslykli. Þegar komið er inn á ,,Mínar síður“ skal velja flipa sem merktur er kosning. Þegar hann er opnaður birtist atkvæðaseðill með nöfnum frambjóðanda og þarf hver kjósandi að merkja við þá fjóra frambjóðendur sem hann styður. Ef kjósandi fær bakþanka er hægt að fara aftur – og aftur inn á „Mínar síður“ og endurkjósa. Síðasta færslan gildir.

Þeir sem eiga eftir að kynna sér frambjóðendur til stjórnar geta skoðað kynningarrit FL hér og kynningarrit FSL hér.

Félagsmenn FL og FSL eru hvattir til að taka þátt og nýta sér atkvæðisréttinn. Kosningu í báðum félögum lýkur klukkan 22 á mánudagskvöld.