Fyrstu kennararnir með MT-gráðu útskrifaðir

Guðmundur Lárus Guðmundsson er í hópi nýútskrifaðra kennara með nýja tegund kennaragráðu.
Fyrstu nemendur Menntavísindasviðs Háskóla Íslands með MT-próf í kennaranámi útskrifuðust í febrúar. Um er að ræða 120 eininga meistarapróf til kennsluréttinda þar sem nemendur taka námskeið til 30 eininga í stað þess að vinna jafnstórt lokaverkefni.
Í hinum fyrsta útskriftarhópi er m.a. Guðmundur Lárus Guðmundsson og á vef háskólans er rætt við hann um námið. „Ég var byrjaður á meistararitgerð en átti erfitt með að tengja við hana. Að eiga kost á að dýpka þekkingu sína með því að taka námskeið í stað ritgerðar finnst mér hafa gefið mér mikið. Þegar nemandi er þátttakandi í námskeiði þá ræðir maður námsefnið við aðra og sér fleiri hliðar á málunum. Þetta er að mínu mati mjög mikilvæg viðbót við kennaranámið því ég hugsa að það séu margir í svipuðum sporum og ég. Efnið sem ég var kominn með í ritgerðina fór samt ekki til spillis því ég gat nýtt það í ýmis verkefni. Ég mæli heilshugar með MT-námsleiðum því þær skapa tækifæri á aukinni kunnáttu á þeim sviðum sem kennarar telja að komi þeim vel í starfi.“
Guðmundur hefur síðustu tvö ár starfað sem umsjónarkennari í Háteigsskóla og nálgast hann kennsluna með aðferðum leiðsagnarnáms, en sú kennsluaðferð er mikið notuð í skólanum. Hann sjálfur átti ekki farsæla skólagöngu og varð það einmitt til þess að hafa áhrif á starfsvalið.
„Ég var ákaflega rólegur nemandi með ógreinda lesblindu. Ég týndist í hópnum og fékk ekki þann stuðning sem ég þurfti. Upplifun mín af grunnskólaárunum hafði mikil áhrif á val mitt á kennaranámi. Mig langaði að geta tekið þátt í því að styðja við börn á skólagöngunni, leggja mitt af mörkum við að halda utan um nemendur sem eiga í erfiðleikum og passa umfram allt að enginn gleymist. Öll börn geta lært en það er undir okkur komið að hvetja þau til dáða og vera þeim góðar fyrirmyndir. Þótt skólaganga mín hafi verið þyrnum stráð þá gafst ég ekki upp og hélt áfram námi. Mín lexía, sem ég tek með mér í kennslu til nemenda minna, er að láta aldrei deigan síga þótt vindar blási,“ segir Guðmundur.
Guðmundur gefur góð ráð til nýútskrifaðra kennara á vef háskólans. „Það er eðlilegt að fyrsta árið í kennslu sé krefjandi og það er ótrúlega mikið sem þarf að taka inn. Engir tveir dagar eru eins og það gerir það að verkum að ég mæti til vinnunnar fullur tilhlökkunar alla daga. Ekki hika við að fá aðstoð frá samstarfsfólki varðandi kennslu, samskipti og starfið. Ég elska starfið mitt, vinnustaðinn minn, nemendur mína og samstarfsfólkið mitt því í vinnunni er ég bara ég sjálfur og allir leyfa mér að vera það. Þetta kann að hljóma klisjukennt en að fara í kennaranám er besta ákvörðun sem ég hef tekið í lífinu,“ segir Guðmundur Lárus Guðmundsson kennari.