Fyrsti þáttur NETnótunnar 2021 frumsýndur

Fréttir|14. júní 2021

Myndbönd tónlistarskólanna sem komu fram í fyrsta þætti NETnótunnar eru nú aðgengileg. Frábær myndbönd sem auðvelt er að mæla með.

Um fimmtíu tónlistarskólar sendu myndbönd í NETnótuna 2021. Myndböndin eru afar skemmtileg áhorfs, frábærir flytjendur og fróðleikur um tónlistarskólana í bland. 

Nótan hefur verið árlegur viðburður í starfi tónlistarskólanna í áratug en vegna COVID-19 reyndist ekki unnt að halda hátíðina með hefðbundnum hætti. Farin var sú leið að bjóða tónlistarskólum að senda inn myndbönd með tónlistarflutningi nemenda og var sjónvarpsstöðin N4 fengin til að klippa efnið og sýna í þremur sjónvarpsþáttum. 

„Horft er til þess að NETnótan geti allt í senn þjónað sem skemmtileg og gagnleg reynsla fyrir nemendur, kynningarátak á starfsemi tónlistarskóla, þekkingarsköpun og fjárfesting í tækniinnviðum, og áhugaverð heimildaöflun um tónlistarskólakerfið á Íslandi,“ segir í kynningu um NETnótuna.

Myndbönd skólanna sem voru í fyrsta þætti eru hér í heild