Fyrsta íslenska skólaeldhúsið Svansvottað

Eldhúsið í leikskólanum Aðalþingi í Kópavogi hlaut Svansvottun í marsmánuði, fyrst allra íslenskra skólaeldhúsa. Vottunin rímar vel við stefnu skólans.
Leikskólinn Aðalþing er rekinn af kennurum samkvæmt þjónustusamningi við Kópavog. Aðalmarkmið skólans er að veita barninu bestu umönnun og kennslu sem völ er á og þar er í mörg horn að líta. Huga þarf að aðstöðu, aðbúnaði, kennslu, líðan, loftgæðum og síðast en ekki síst matreiðslu og matarræði barnanna. Það síðastnefnda hefur verið í forgrunni að undanförnu.
„Það þarf að vera jafnvægi á milli þeirra grunnþátta sem gera okkur að lífsglöðum manneskjum,“ segir Hörður Svavarsson skólastjóri. „Við öndum, sofum, borðum, hreyfum okkur, hugsum, rannsökum og sköpum. Matur getur aldrei verið aukaatriði í lífi okkar. Það er augljóst að gott eldhús og góður matur er forsenda fyrir góðu skólastarfi.“
Þetta viðhorf er meðal ástæðna þess að Aðalþing hóf ferlið við að öðlast Svansvottun á skólaeldhúsi leikskólans fyrir um tveimur árum. Svansmerkið er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna sem tekur til alls lífsferils vöru og þjónustu. Svansvottuð vara er betri fyrir umhverfið og heilsuna.

„Ég finn lykt og bragðið af chilli con carne. Án þess að smakka. Þannig gerist bara stundum.“ - Emil, 5 ára.
Ferlið var ítarlegt. Til dæmis þarf að sýna fram á, með haldbærum gögnum, að birgjar, innkaup, ferlar og framleiðsla standist kröfur vottunarinnar. Í ljósi stefnu skólans var þetta þó rökrétt næsta skref.
„Frá upphafi var lagt af stað með mjög ákveðna matarstefnu í Aðalþingi. Áhersla var lögð á að matur væri sem mest unninn frá grunni og sykur ætti ekki að nota í matreiðslu. Alla tíð hefur verið lögð áhersla á að hafa menntað fagfólk í eldhúsinu,“ útskýrir Hörður. Þá hefur skólinn stuðst við „Slow Food“ hugmyndafræðina sem gengur út á að matur eigi að vera góður, hreinn og sanngjarn; þ.e. hráefnið lífrænt og fengið úr nærumhverfinu, ef völ er á, og framleiðslan sanngjörn, svo sem gagnvart framleiðendum, fólki, jörð og náttúru.
Hörður Svavarsson skólastjóri, Heiðdís Hauksdóttir matreiðslumeistari, Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri, Agnes Gústafsstjóri aðstoðarskólastjóri og Ester Alda Hrafnhildur Bragadóttir, sérfræðingur Umhverfisstofnunar. Stofnunin er umsjónaraðili vottunarinnar hér á landi.
Þá hefur verið stefnt að því að gera Aðalþing að eiturefnalausum leikskóla frá árinu 2025. „Lítil börn eru sérlega viðkvæm fyrir skaðlegum efnum vegna þess að heili og ónæmiskerfi þróast á unga aldri,“ segir Hörður. Þá eru þau einnig í meiri hættu á að neyta skaðlegra efna en fullorðnir.
Svansvottun lá því sem næst beint við. „Það fer vel að matarstefnu, eiturefnaleysi, sjálfbærni og gæðastarfi Aðalþings að vinna að Svansvottun fyrir eldhúsið og matinn.“
Markmiðið tókst nú 12. mars þegar aðstandendur skólans hlutu Svaninn formlega við hátíðlega athöfn í Aðalþingi. „Það var merkilegur viðburður að maturinn í leikskólanum fengi Svansvottun. Svansmerkið er áreiðanleg vottun sem flestir Íslendingar þekkja. Ekkert skólaeldhús hér á landi hefur fengið Svansvottun fram að þessu,“ segir Hörður. „Þetta er líka mikilvægt skref núna þegar verið er að útvista matreiðslu skóla og kaupa aðfluttan verksmiðjuframleiddan mat í auknum mæli.“
„Svansvottun er góð leið til að miðla umhverfisstarfi okkar og sendir samfélaginu skýr skilaboð um að skólinn vinni markvisst að því að draga úr umhverfisáhrifum í öllum lífsferli vörunnar.“
Hvað er Svansvottun?
Svanurinn er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna sem hefur þann tilgang að draga úr umhverfisáhrifum af vörum eða þjónustu og auðvelda neytendum að velja umhverfisvænni kosti.
Til þess að vara eða þjónusta geti hlotið Svansvottun þarf að uppfylla ákveðnar kröfur sem miða að því að tryggja að varan eða þjónustan sé betri fyrir umhverfið og heilsuna. Til dæmis þarf að gæta að því að engin skaðleg efni séu notuð við framleiðslu og að orku- og vatnsnotkun og úrgangi sé haldið í lágmarki. Þá þarf að huga að gæðum og endingu. Svansmerkið er lífsferilsmerki sem þýðir að í allri viðmiðaþróun er leitast við að hanna kröfur sem taka á öllum lífsferli vörunnar eða þjónustunnar sem um ræðir. Kröfur og viðmið vottunarinnar eru í sífelldri þróun og taka mið af nýjustu rannsóknum og þekkingu á hverjum tíma.
Svanurinn er umhverfismerki af Týpu 1 samkvæmt ISO 14024 umhverfisvottunarstaðalnum. Merkinu var komið á fót af Norrænu ráðherranefndinni árið 1989. Markmiðið var að stofna eitt sameiginlegt merki sem neytendur gætu auðveldlega þekkt, væri áreiðanlegt og ekki rekið í hagnaðarskyni. Umhverfisstofnun er umsjónaraðili vottunarinnar hér á landi.