Fyrirlestar Skólamálaþings aðgengilegir á vefnum

Fréttir|18. janúar 2023

Upptökur af erindum sem voru flutt á Skólamálaþingi KÍ á liðnu hausti eru nú aðgengilegar hér á vefnum. Yfirskift Skólamálaþings var „Fögnum fjölbreytileikanum í skólanum“ og er óhætt að fullyrða að erindin eru bæði áhugaverð og fróðleg.

Hinsegin málefni og skólakerfið voru í brennidepli á Skólamálaþingi KÍ sem átti að fara fram á kennaradeginum, 5. október, á liðnu hausti. Rafmagnsleysi gerði út um þingið og var því brugðið á það ráð fá fyrirlesarana til að flytja sín erindi fyrir framan myndavélar í salarkynnum KÍ við Borgartún. 

Alls voru flutt átta erindi á þinginu; fyrilesarar voru Jónína Hauksdóttir, varaformaður KÍ, Íris Ellenberger, dósent á Menntavísindasviði HÍ, Svandís Anna Sigurðardóttir, sérfræðingur á mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu Reykjavíkurborgar, Sólrún Óskarsdóttir, leikskólastjóri á Brákarborg, Hafþór Óskarsson, kennari í Langholtsskóla, Harpa Jóhannsdóttir tónlistarkennari, Mara Birna Jóhannsdóttir tónlistarnemi í LHÍ, og Tótla I. Sæmundsdóttir, fræðslustýra Samtakanna ´78.

Verðum að skapa örugg rými fyrir öll

Íris Ellenberger, dósent á menntavísindasviði Háskóla Íslands, sem kennir meðal annars hinsegin menntunarfræði, var aðalfyrirlesari Skólamálaþing. Hún fjallaði um hinseginvæna skóla og hvernig við sköpum örugg rými fyrir öll.

Hún vísaði í könnun á vegum Samtakanna ´78, GLSEN og menntavísindasviðs HÍ sem lögð var fyrir hinsegin ungmenni á aldrinum 13 til 20 ára hér á landi árið 2017, um stöðu og líðan þeirra í skólum. Ungmennin svöruðu spurningum um reynslu sína af skólagöngu síðastliðins skólaárs.

„Það að búa til öruggt umhverfi fyrir alla nemendur, óháð kynhneigð, kynvitund og kyneinkennum og þar fram eftir götunum, svo miklu meira heldur en hugtök, fornöfn og regnbogafánar," segir Íris Ellenberger í erindi sínu.

Í ljós kom að:

  • Þriðjungur þátttakenda fann fyrir óöryggi í skólanum vegna kynhneigðar og fjórðungur vegna kyntjáningar á tímabilinu.
  • Fjórðungur þeirra var fjarverandi einn eða fleiri daga í mánuði vegna óöryggis.
  • Þriðjungur hafði oft eða mjög oft heyrt niðrandi ummæli um hinsegin fólk í skólanum og helmingur þátttakenda sagði að það hefði mikil eða mjög mikil áhrif á líf þeirra.
  • 18% þátttakenda höfðu orðið vör við að kennarar eða annað skólastarfsfólk gripu oftast, eða alltaf, inn í niðrandi tal um nemendur.
  • 46% sögðust aldrei hafa orðið vitni að slíkum inngripum.
  • 42% þátttakenda fannst ekki þægilegt að tala við kennara sína um hinsegin málefni.

Frá haustinu 2021 hefur tilkynningum um líkamlegt, andlegt og stafrænt ofbeldi gagnvart hinsegin börnum og ungmennum farið fjölgandi, benti Íris á. 

„Í sumar og í haust hafa borist fréttir af einelti árásum og ofbeldi gagnvart hinsegin börnum og ungmennum. Börn fá skilaboð um að þau eigi að drepa sig og eru áreitt innan og utan skóla, svo sum þora ekki að vera úti meðal almennings,“ segir Íris.

Hún bætir við að nú séum við stödd á tímamótum: Ofbeldi gegn hinsegin fólki færist í aukana og því sé mikilvægt að grípa nú þegar til aðgerða.

Þá er spurningin hvernig við förum að því.

„Það að búa til öruggt umhverfi fyrir alla nemendur, óháð kynhneigð, kynvitund og kyneinkennum og þar fram eftir götunum, svo miklu meira heldur en hugtök, fornöfn og regnbogafánar," sagði Íris meðal annars í erindi sínu. 

Nú segir Íris komið að því að skoða skólann, skólamenninguna og það skólaumhverfi sem nemendum sé búið.

Við getum snúið þessu við

Tótla I. Sæmundsdóttir, fræðslustýra Samtakanna ´78, tók undir með Írisi um að vandinn hafi færst í aukana að undanförnu. Við höfum ekki áður séð áreitni frá ókunnugum börnum í þessum mæli. Þetta eru ekki lengur einungis skólafélagar, sem er þó nógu slæmt, heldur líka önnur börn sem eru ótengd krökkunum. Ofbeldi er ekki einungis í persónu lengur, eða staðbundið eftir hverfum eða skólum, heldur erum við líka farin að sjá áreitni og ofbeldi milli landshluta.“

„Við þurfum að taka þetta alvarlega og við þurfum að taka á þessu saman.“

„Sem einstaklingar verðum við að sammælast um að segja alltaf eitthvað þegar við verðum vör við fordóma og hafa augu og eyru opin, líka þegar okkur finnst það ekki koma okkur við. Látum börnin okkar, hinsegin og ekki hinsegin, alltaf sjá að við stöndum með hinsegin fólki. Sem samfélag verðum við líka að stíga skref og tryggja fræðslu innan sem utan skóla, tryggja að það verði gripið inn í þegar fólk verður vart við ofbeldi gegn börnum.“

„Við getum snúið þessu við.“

Viljum að hver og einn skóli hljóti regnbogavottun

Svandís Anna Sigurðardóttir, sérfræðingur á mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu Reykjavíkurborgar, talaði um regnbogavottun Reykjavíkurborgar –úrræði sem stendur öllum starfsstöðum borgarinnar til boða.

„Stóra markmiðið er að gera starfsemi, starfsstaði og þjónustu Reykjavíkurborgar hinseginvænni,“ útskýrir Svandís Anna, „fyrir bæði starfsfólk og þjónustuþega og þannig koma í veg fyrir beina og óbeina mismunun í garð hinsegin fólks“.

„Við viljum auðvitað að hver og einn skóli verði regnbogavottaður, en þetta er valkvætt og einn starfsstaður sækist eftir vottun og þá hefst vottunarferlið.“

Ferlið felur ýmislegt í sér, til dæmis er framkvæmd úttekt á rýminu og umhverfinu og starfsfólk látið útbúa aðgerðaáætlun, en fræðsla er alltaf þungamiðjan.

Fræðslan, sem er útbúin og útfærð til að henta starfsemi hvers starfsstaðar fyrir sig, felst meðal annars í því að greina starfsstaðinn og menninguna. „Greina til dæmis námsefni í skólum, skoða stuðning við hinsegin nemendur og börn sem eiga hinsegin foreldra og bæta sýnileika í skólanum,“ segir Svandís Anna. „Fá þessa hinsegin sérþekkingu beint í æð“.

„Ég segi mjög oft að það þurfa ekki allir að verða hinsegin sérfræðingar. Þeir þurfa að vita eitthvað, þeir þurfa að geta nýtt sér hinsegin þekkingu, en svo þurfa þeir að vita hvar er hægt að sækja í þessa þekkingu; fá upplýsingar, fá gögnin, finna bækurnar o.s.frv.,“ segir Svandís Anna.

Lífsins verkefni að standa vörð um fyrirmyndirnar

Leikskólinn Brákarborg var fyrstur til að hljóta regnbogavottun Reykjavíkurborgar. Sólrún Óskarsdóttir, skólastjóri Brákarborgar, tók einnig þátt í Skólamálaþingi:

„Við verðum að standa vörð um að allir hafi fyrirmyndir á einn eða annan hátt. Það er stóra hlutverkið okkar í lífinu og vinnunni. Þegar við urðum fyrsti leikskólinn til að fá regnbogavottun Reykjavíkurborgar notuðum við tækifærið til að hvetja aðra leikskóla til að gera slíkt hið sama, ásamt því að eiga samtal við skólana í okkar nærsamfélagi, jafnt leikskóla sem grunnskóla," segir Sólrún í erindi sínu. 

Pláss fyrir alls konar og alla

„Það hvernig kennarar taka á málefnum hinseginleikans skiptir sköpum og getur breytt upplifun hinsegin barna til muna. Þegar nemendur hafa fyrirmyndir eða efni til að spegla sig í staðfesta þau ákveðinn hluta af sinni sjálfsmynd. Á sama tíma sjá og upplifa aðrir nemendur að hinseginleikinn er bara eins og hvað annað í lífinu. Ekkert til að hræðast, uppnefna eða gera grín að,“ segir Hafþór Óskarsson, kennari við Langholtsskóla, sem fjallaði einnig um mikilvægi hinsegin fyrirmynda í skólastarfi.

 

Horfa á myndbönd Skólamálaþings 2022