Fyrirkomulag útleigu sumarhúsa liggur fyrir

Fréttir|25. janúar 2021

Félagsmenn KÍ geta á tímabilinu 26. febrúar til hádegis 16. mars skoðað orlofshús sem eru í boði næsta sumar – og sett fram sinn óskalista. Hægt er að velja að hámarki sex eignir.

Orlofssjóður KÍ mun í annað sinn sumarið 2021 að bjóða upp á „úthlutun“ fyrir eignir í vikuleigu og hins vegar hefðbundna leigu „fyrstur kemur, fyrstur fær“ fyrir flakkaraleigur (leiga í 2–7 nætur).
Við úthlutun verður horft til réttinda félagsmanna, þ.e. punktaeignar og úthlutað skv. því.

Vert er að taka fram að það breytir engu hvenær á opnunartímanum umsókn berst, hún mun raðast samkvæmt orlofsrétti (punktaeign) félagsmannsins.

Athugið að félagsmenn í FKE sem hafa látið af störfum geta ekki tekið þátt í úthlutun sumarið 2021.

Eignir í leigu sumarið 2021.

 

Fyrirkomulag úthlutunar

Félagsmaður getur sótt um fleiri en eina eign í vikuleigu. Á tímabilinu frá föstudeginum 26. febrúar kl 12:00 á hádegi til og með þriðjudagsins 16. mars kl 11:59 (hádegi), getur félagsmaður skoðað þær eignir sem eru í boði í vikuleigu og sett upp sinn óskalista, velur nr. 1 það sem hann óskar helst eftir að leigja, svo val 2, val 3 o.s.frv. Að hámarki hægt að velja sex eignir.

Þegar félagsmaður hefur sett upp sinn óskalista þá sendir hann inn sína umsókn og verður umsókn hans þá virk í bókunarkerfinu Frímanni.

Þriðjudaginn 16. mars kl. 13:00 fer orlofskerfið yfir allar umsóknir sem bárust á tímabilinu og úthlutar í samræmi við punktaréttindi félagsmanna. Sama dag fær félagsmaðurinn tölvupóst um hvort hann hafa fengið úthlutað eign af sínum óskalista og þá hvaða eign. Í tölvupóstinum er hlekkur sem vísar á greiðslu umsóknar. Greiðsla þarf að hafa borist í síðasta lagi fyrir kl. 12:00 á hádegi föstudaginn 19. mars 2021.

Ath.: Ef félagsmaður vill ekki þá eign sem honum var úthlutað, getur félagsmaður valið að hætta við og/eða sleppt því að greiða og fellur þá umsókn niður.

Úthlutaðar leiguvikur sem ekki eru greiddar fyrir kl 12:00 á hádegi 19. mars, verða afbókaðar og eru þær þá aftur bókanlegar í orlofskerfinu fyrir þá félaga sem sóttu um úthlutun en fengu ekki. Milli kl. 13:00 föstudaginn 19. mars til kl 11:59 (á hádegi) mánudaginn 22. mars, geta þeir félagsmenn farið inn á orlofsvefinn og bókað þessar lausu vikur með fyrirkomulaginu „fyrstur kemur, fyrstur fær“. Greiða þarf strax fyrir bókun.

Opnað verður fyrir „Flakkara“ (leiga í 2–7 nætur) þriðjudaginn 23. mars kl. 18:00 með leigufyrirkomulaginu „fyrstur kemur, fyrstur fær“ og verða úthlutunardagar fjórir samkvæmt punktaeign félagsmanna.

Opnunardagar fyrir bókanir flakkara

Sumartímabilið verður frá 11. júní til um miðjan ágúst.

Dagsetning

Tími

Skýring

23. mars

kl. 18:00

þeir sem eiga 300 punkta eða fleiri

24. mars 

kl. 18:00

þeir sem eiga 100 punkta eða fleiri

25. mars

kl. 18:00

þeir sem eiga 1 punkt eða fleiri

26. mars

kl. 18:00

þeir sem eiga 0 til -23 punkta

26. mars

kl. 18:00

FKE-félagar sem eiga punkta

25. maí

kl. 18:00

sumum vikuleiguhúsum sem hafa ekki verið leigð út verður breytt í flakkara


Upplýsingar um úthlutun og leiðbeiningar um Orlofsvefinn (Frímann)

 

Framboð orlofshúsa á komandi sumri verður aðgengilegt á Orlofsvefnum (Frímanni) um 20. febrúar 2021.

Sumarið 2021 verður einnig hægt að kaupa eftirfarandi með niðurgreiðslu frá Orlofssjóði KÍ:

  • Ferðavísanir fyrir hótelgistingar innanlands
  • Gjafabréf Úrval Útsýn
  • Gjafabréf hjá Icelandair, Air Iceland Connect og Flugfélaginu Erni
  • Útilegukortið
  • Veiðikortið

Einnig verður hægt að sækja um styrk að hámarki kr. 7.500 vegna göngu- og bátsferða (ekki ferjur) gegn framvísun kvittana.

Við hvetjum félagsmenn KÍ að kynna sér Frímann-afslætti sem þeim stendur til boða gegn framvísun staðfestingar á félagsaðild. Sjá: http://www.frimann.is/afslattur/afslaettir

Verðskrá fyrir sumarið 2021