Furðulegt háttalag ráðherra

Fréttir|26. maí 2015

Aðalbjörn Sigurðsson, útgáfu- og kynningarstjóri KÍ skrifar.

Um miðjan febrúar stóðu Kennarafélag Reykjavíkur, Félag skólastjórnenda í Reykjavík og Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar fyrir Öskudagsráðstefnu 2015. Meðal framsögumanna var Toby Salt sem er sérfræðingur hjá Ormiston Academies Trust í Bretlandi. Meginniðurstaða Salt var að stjórnmálamenn séu háðir breytingum. Í stað þess að hlúa að námi og kennurum vilji þeir stöðugt umbylta menntakerfinu. Mér hefur reglulega orðið hugsað til erindis Salt síðustu misseri þar sem ég hef fylgst með störfum og framgangi núverandi menntamálaráðherra, Illuga Gunnarssonar. Ég verð að viðurkenna að ég batt ákveðnar vonir við hinn nýja ráðherra þegar hann hóf störf. Hann talaði um að setja saman hvítbók þar sem fundnar yrðu leiðir til að bæta meðal annars læsi nemenda, minnka brottfall úr framhaldsskólum og styrkja faggreinanám. Í þessu ferli yrði haft ríkt samráð við hagsmunaaðila. Það hljómaði skynsamlega. En svo tók ráðherra til starfa.

Miklar breytingar
Ein niðurstaða hans er að spara í framhaldsskólum landsins með því að hætta að tryggja nemendum eldri en 25 ára skólavist. Sú ákvörðun ráðherrans var ekki rædd við hagsmunaaðila, heldur birtist fyrst í frumvarpi til fjárlaga 2015. Á Alþingi var málið því rætt samhliða umræðum um breytingar á virðisaukaskatti og tekjustofn Ríkisútvarpsins, en ekki sem breyting á menntastefnu þjóðarinnar. Málið var í framhaldi keyrt í gegnum þingið – það þurfti jú að samþykkja fjárlög til að tryggja rekstur ríkissjóðs næsta árið. 

Næst var það stytting náms í framhaldsskólum, úr fjórum árum í þrjú. Sú ákvörðun er risavaxið menntapólitískt mál og aftur var umræðan takmörkuð þó ráðherra ræddi hana reglulega í fjölmiðlum. Þar sagði hann rökin meðal annars efnahagsleg því með breytingunni mætti koma ungu fólki fyrr inn í háskóla og þar með fyrr út í atvinnulífið að námi loknu. Eftir standa þó fjölmargar spurningar. Hvaða áhrif hefur þetta á námið sjálft og gæði þess? Verða nemendur tilbúnir til að takast á við háskólanám eftir þriggja ára nám í framhaldsskólanum? Eykur þetta eða dregur úr brottfalli? Hvað með rekstur framhaldsskólanna? Meintur sparnaður mun vera rakinn í nýrri skýrslu sem ráðherra er þegar farinn að vitna í en enginn fær að sjá. Beiðnum forsvarsmanna Kennarasambandsins um aðgang að henni hefur enn ekki verið svarað.

Nú virðist ráðherra ætla að snúa sér að því að sameina framhaldsskóla. Fyrsta skrefið hefur þegar verið stigið með umdeildri sameiningu Tækniskólans og Iðnskólans í Hafnarfirði. Enn einu sinni skorti á samráð, því ekki var rætt við kennara, nemendur eða sveitarstjórnarmenn í Hafnarfirði fyrr en málið var nánast frágengið. Allir þessir aðilar hafa í framhaldi mótmælt fyrirætlununum. En allt kemur fyrir ekki. Í framhaldi fréttist af sameiningahugmyndum á bæði Norðurlandi og Vestfjörðum. Þær hafa tímabundið verið afgreiddar sem viðræður um aukna samvinnu. En sporin hræða og í dag búa fjölmargir kennarar og nemendur því við óvissu um hvert framhaldið verður.

Ofan á allt þetta bætist að meint samráð vegna hvítbókar ráðherra reyndist meira í orði en á borði. Kennarasambandið hefur til að mynda aðeins fengið að skila inn greinargerðum um einstaka þætti þessarar litlausu bókar, en hefur ekki haft beina aðkomu að þeirri vinnu sem fram hefur farið. Málið liggur nú á borði ráðherra og alger óvissa ríkir um hvort þar verði hlustað á ábendingar og athugasemdir sérfræðinga - og um leið hver niðurstaða ráðherrans verður.

Undarleg vinnubrögð
Hraðar breytingar og skortur á samráði virðast leiðarstefið í verkum Illuga síðustu misseri, sem og sú skoðun að engin ástæða sé til að bera breytingar á skólum og menntakerfinu undir sérfræðingana sem vinna í skólunum – kennarana sjálfa. Þetta gerir lítið úr bæði menntun og þekkingu stéttarinnar. Sú spurnig kviknar hvort aðrir ráðherrar kæmust upp með svipuð vinnubrögð. Gæti heilbrigðisráðherra gert grundvallarbreytingar á Landspítalanum án þess að ráðfæra sig við yfirmenn þar, lækna, hjúkrunarfræðinga og aðra sérfræðinga? Hvað yrði sagt ef hann tilkynnti dag einn að endurhæfing á Grensás yrði stytt um fjórðung því það væri þjóðhagslega hagkvæmt að koma sjúklingunum fyrr en ella aftur út á vinnumarkaðinn? Kæmist innanríkisráðherra upp með að gera viðamiklar breytingar á vinnulagi lögreglumanna, saksóknara eða dómara með það að markmiði að ná fram sparnaði? Væri það látið ótalið ef sjávarútvegsráðherra tilkynnti dag einn að stór undirstofnun hans yrði flutt milli landshluta á næstu mánuðum og allir starfsmenn með? Svarið blasir við.

Að öllu þessu sögðu er rétt að taka fram að einstakir skólar og menntakerfið í heild eiga að þróast og taka breytingum. En það á ekki að gera til að tryggja að einstaka ráðherrar geti skapað sér arfleifð eða minnisvarða. Því þegar núverandi ráðherra hættir tekur nýr við, með nýjar áherslur og knýjandi þörf fyrir að gera breytingar sem tekið verður eftir. Það hlýtur að vera lágmarkskrafa til stjórnmálamanna að þeir vandi sig og geri breytingar þar sem þörf er á en ekki bara breytingar, breytinganna vegna.