Fundur boðaður síðdegis í dag

Fréttir|9. nóvember 2014

Ríkissáttasemjari hefur boðað samninganefndir Félags tónlistarskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga til fundar í Karphúsinu klukkan 17 í dag. Síðasti fundur samninganefndanna stóð frá 10.30 til 17 á föstudag en var án árangurs.

Á miðvikudag verða þrjár vikur liðnar síðan verkfall tónlistarkennara hófst, hafi ekki samist fyrir þann tíma.

Áhrifa verkfallsins er þegar farið að gæta verulega og hafa bæði kennarar og stjórnendur áhyggjur af því að önnin sé að verða ónýt. „Haustönnin er að verða nánast ónýt í skólastarfinu hjá okkur og ef verkfallið dregst mikið á langinn er hætt við að nemendur flosni upp úr námi,“ sagði Hjörleifur Örn Jónsson, formaður Samtaka tónlistarskólastjóra, í samtali við RÚV á föstudag.

Hjörleifur er skólastjóri Tónlistarskólans á Akureyri og hann segir verkfallið ná til á bilinu 300 til 400 nemenda í sínum skóla. Verkfallið setur að sögn Hjörleifs rekstur skólanna í mikið uppnám auk þess að skaða nám fjölda nemenda.

„Tónlistarskólinn á Akureyri á til að mynda von á strengjasveit núna í lok mánaðarins, sem er að ferðast yfir hálfan hnöttinn frá Ástralíu,“ sagði Hjörleifur í frétt Vísis og bætti við að áætlaðir hafi verið um 20 jólatónleikar í bænum. Allt þetta sé í uppnámi og svipað ástand sé í tónlistarskólunum víða um land að sögn Hjörleifs. Frétt RÚV má lesa hér.