Fundir um nýju persónuverndarlöggjöfina

Fréttir|4. júní 2018

Fundirnir voru skipulagðir í samvinnu við fræðslustjóra eða skólaskrifstofur í viðkomandi landshluta en alls verða fundirnir sex talsins. Þeir verða í Hafnarfirði, á Egilsstöðum, Ísafirði, Eyrarbakka, Akranesi og Akureyri.

Skólastjórafélag Íslands og Samband íslenskra sveitarfélaga standa þessa dagana fyrir sameiginlegri fundaferð um landið. Á fundunum gefst skólastjórnendum kostur á að ræða þau mál sem á þeim brenna, bæði út frá innleiðingu á nýrri persónuverndarlöggjöf og framhaldi Mentor-málsins svonefnda.

Fundirnir voru skipulagðir í samvinnu við fræðslustjóra eða skólaskrifstofur í viðkomandi landshluta en alls verða fundirnir sex talsins. Þeir verða í Hafnarfirði, á Egilsstöðum, Ísafirði, Eyrarbakka, Akranesi og Akureyri.

Skólastjórar og aðrir lykilstjórnendur sem vinna með persónuverndarmál innan skólanna eru hvattir til að mæta á fundina.

Nánari kynning og dagsetning fundanna.