Fundað um framtíðarskipan skólaþjónustu

Fréttir|10. maí 2023

Mennta- og barnamálaráðherra boða til opins samráðsfundar, 5. júní næstkomandi, þar sem rætt verður um skólaþjónustu og niðurstöður nýliðins þjóðfundar.

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, boðar til opins samráðsfundar um framtíðarskipan skólaþjónustu á Íslandi mánudaginn 5. júní kl. 10:00–16:00 í Silfurbergi í Hörpu og í streymi.

Fundurinn markar þann síðasta í opna samráðsferlinu og er nýtt skipulag skólaþjónustu að taka á sig mynd. Á fundinum verða kynntar niðurstöður þjóðfundar um framtíð skólaþjónustu og þjóðfunda í héraði sem haldnir voru í mars síðastliðnum. Farið verður yfir mögulegar útfærslur á skólaþjónustu út frá niðurstöðum samráðsins og kosti og galla ólíkra leiða í hópvinnu.

„Mennta- og barnamálaráðuneytið óskar eftir þátttöku og endurgjöf sem flestra aðila úr skólakerfinu og annarra áhugasamra til að móta heppilegustu útfærsluna. Um einstakt tækifæri er að ræða til að móta framtíðarskipulag skólaþjónustu á Íslandi. Í kjölfar fundar hefst vinna í ráðuneytinu við að nýta niðurstöður og leggja lokahönd á frumvarp til laga um heildstæða skólaþjónustu á Íslandi sem stefnt er að því að birta í samráðsgátt í haust,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins. 

Dagskráin hefst með erindum sem einnig verður streymt á vef Stjórnarráðsins. Að hádegisverði loknum hefst hópvinna bæði í sal og rafrænt fyrir þau sem taka þátt á netinu. Fundurinn verður túlkaður á táknmáli. Þátttaka er fundargestum að kostnaðarlausu og er opið fyrir skráningar til og með 26. maí nk.

Samráðsferlið hófst í nóvember á opnum kynningarfundi um áform um ný heildarlög um skólaþjónustu með vel á þriðja hundrað þátttakendum.

„Í vetur tóku m.a. um þrjú hundruð manns þátt í rafrænum samráðsfundum og hafa meira en þúsund börn og ungmenni tekið þátt í ferlinu með fjölbreyttum hætti. Yfir fjögur hundruð manns sóttu þjóðfund um framtíð skólaþjónustu í Hörpu 6. mars síðastliðinn. Í kjölfarið voru jafnframt haldnir þjóðfundir heima í héraði víða um land. Þátttakan hefur verið vonum framar og þakkar mennta- og barnamálaráðuneytið fyrir framlag allra þeirra sem komið hafa að vinnunni," segir í tilkynningu mennta- og barnamálaráðuneytis.