Fundað um framtíð skólaþjónustu í Borgartúninu

Fréttir|12. júní 2023

Kennarar, skólastjórnendur og fulltrúar frá mennta- og barnamálaráðuneytinu komu saman í höfuðstöðvum Kennarasambandsins í dag til að ræða um framtíð skólaþjónustu.

Í dag var haldinn samráðsfundur stjórna og skólamálanefnda KÍ með fulltrúum mennta- og barnamálaráðuneytis. Á fundinum var farið yfir vinnu vegna laga um skólaþjónustu með sérstakri áherslu á þátt kennara og skóla á mismunandi skólastigum og af ólíkum skólagerðum í því verkefni að auka gæði í skólastarfi og efla farsæld og menntun innan íslenskra skóla.

Á fundinn mættu um 50 fulltrúar aðildarfélaga KÍ, umræður voru fjörlegar og skiluðu af sér tillögum inn í bakhóp ráðuneytisins vegna lagagerðarinnar.  Formaður KÍ, Magnús Þór Jónsson, á þar sæti og var hann sáttur við vinnu dagsins.

„Fyrst og fremst er afskaplega ánægjulegt að sjá góða þátttöku okkar fólks í vinnu dagsins. Það er að mínu viti einstakt í kennarasamfélaginu bara á heimsvísu að geta með stuttum fyrirvara kallað saman svo öfluga fulltrúa ólíkra skólastiga og gerða með það að leiðarljósi að bæta skólastarf. Við í KÍ höfum nú kallað slíka hópa nokkrum sinnum til við stefnumótunarvinnu og umræður um skólamál og það er mikið fagnaðarefni að sjá hversu vel hefur til tekist og þann metnað sem við finnum frá kennurum á slíkum fundum.

„Ég er sannfærður um það að afrakstur dagsins mun nýtast bakhópnum vegna laga um skólaþjónustu afskaplega vel, enda hundruða ára reynsla í vinnuhópum dagsins sem byggist á árangursríku skólastarfi,“ segir Magnús Þór. 

Tengdar fréttir

„Ég er sannfærður um það að afrakstur dagsins mun nýtast bakhópnum vegna laga um skólaþjónustu afskaplega vel, enda hundruða ára reynsla í vinnuhópum dagsins sem byggist á árangursríku skólastarfi,“ segir Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ.