Fundað með ráðherra um málefni tónlistar

Formenn FT og KÍ áttu fund með menningar- og viðskiptaráðherra þar sem rætt var um mikilvægi aðkomu Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum þegar kemur að mótun fyrstu tónlistarstefnu þjóðarinnar og samningu frumvarps til laga um tónlist.
Sigrún Grendal, formaður Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum og Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, hittu Lilju D. Alfreðsdóttur, menningar- og viðskiptaráðherra á Alþjóðadegi kennara, 5. október.
Efni fundarins var að ræða tónlistarmenntun og málefni tónlistar í tengslum við fyrstu tónlistarstefnu þjóðarinnar og frumvarp til laga um tónlist sem verið er að vinna að í ráðuneytinu.
Ráðherra fór yfir vinnuna sem farið hefur fram nú þegar og umræða var um mikilvægi aðkomu FT að þeirri vinnu enda gegnir félagið lykilhlutverki þegar kemur að tónlistarmenntun á Íslandi.
Á nýafstaðinni tveggja daga ráðstefnu á vegum FT, Tónlist er fyrir alla, sást vel sá frumkraftur sem í stéttinni býr um allt land og er það þýðingarmikið fyrir tónlistina að rödd félagsins sé sterk á þeim sögulegu tímum þar sem tónlist er mörkuð heildarstefna og heildarrammi.