Fundað með ráðherra

Formaður FT og formaður KÍ áttu fund með menningar- og viðskiptaráðherra á kennaradeginum, 5. október. Á fundinum var rætt um mikilvægi aðkomu Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum þegar kemur að mótun fyrstu tónlistarstefnu þjóðarinnar og samningu frumvarps til laga um tónlist.
Sigrún Grendal, formaður Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum, og Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, hittu Lilju D. Alfreðsdóttur, menningar- og viðskiptaráðherra, á Alþjóðadegi kennara, 5. október síðastliðinn.
Efni fundarins var að ræða tónlistarmenntun og málefni tónlistar í tengslum við fyrstu tónlistarstefnu þjóðarinnar og frumvarp til laga um tónlist sem unnið er að í ráðuneytinu.
Ráðherra fór yfir vinnuna sem farið hefur fram nú þegar og umræða var um mikilvægi aðkomu FT að þeirri vinnu enda gegnir félagið lykilhlutverki þegar kemur að tónlistarmenntun á Íslandi.
Á nýafstaðinni tveggja daga ráðstefnu á vegum FT, Tónlist er fyrir alla, sást vel sá frumkraftur sem í stéttinni býr úti um allt land og er það þýðingarmikið fyrir tónlistina að rödd félagsins sé sterk á þeim sögulegu tímum þar sem tónlist er mörkuð heildarstefna og heildarrammi.