Fundað með leikskólafólki í Fjarðabyggð

Fréttir|14. júní 2024

Forystufólk KÍ fór fyrr í vikunnni til fundar við leikskólakennara og leikskólastjóra í Fjarðabyggð. Tilefnið var að ræða fyrirhugaðar breytingar á skólamálum í byggðarlaginu.

„Það var mjög gefandi og fróðlegt að hitta kennara og stjórnendur leikskóla í Fjarðabyggð og heyra þeirra viðhorf til fyrirhugaðra breytinga á skólamálunum. Þá var líka mikilvægt að hitta fyrir bæjaryfirvöld og embættismenn og geta komið sjónarmiðum Kennarasambandsins á framfæri," segir Jónína Hauksdóttir, varaformaður KÍ. 

Jónína var í föruneyti Kennarasambandsins ásamt þeim Magnúsi Þór Jónssyni, formanni KÍ, Haraldi Frey Gíslasyni, formanni FL og Sigurði Sigurjónssyni, formanni FSL, sem heimsótti leikskóla í Fjarðabyggð fyrr í vikunni. 

Tilefni ferðarinnar eru fyrirhugaðar breytingar á skólakerfinu í Fjarðabyggð. Kennarasambandið hefur tekið undir gagnrýni félagsfólks fyrir austan um að mikill skortur hafi verið á raunverulegu samráði við hagaðila áður en ákvörðun var tekin. 

Forystusveit KÍ hélt alls þrjá fundi með félagsfólki í Fjarðabyggð og þess utan voru leikskólar á Fáskrúðsfirði, Eskifirði, Reyðarfirði, Egilsstöðum, í Fellabæ og Neskaupstað heimsóttir. Fundað var auk þess með bæjaryfirvöldum. 

Fundirnir þóttu takast vel og segir Jónína mikilvægt að hitta fólk á vettvangi og eiga hreinskiptin samtöl um stöðu mála. 

Önnur ferð af tveimur

Þess má geta að fundað var um stöðu grunnskólans í Fjarðabyggð í lok maí. Þá fóru Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, Mjöll Matthíasdóttir, formaður FG, og Þorsteinn Sæberg, formaður SÍ, austur til fundar við kennara og stjórnendur grunnskólanna. Fjölmennt var á fundi í Eskifjarðarskóla og þar kom skýrt fram að félagsfólk KÍ telur að samráð yfirvalda við skólakerfið hafi ekki verið nægjanlegt. 

„Það er mikilvægt að þetta verði alvöru samráð þar sem skólarnir verði leiðandi í að rýna sín verkefni. Krafan er skýr um alvöru samráð í gegnum hvern skóla fyrir sig. Hér er mjög öflugt fólk með brennandi áhuga á starfi sínu," sagði Magnús Þór Jónsson að loknum fundinum með grunnskólafólki.