Fulltrúar NLS vilja efla samráð um kjaramál

Fyrsti samráðsfundur samninganefnda innan Norrænu kennarasamtakanna, NLS, fór fram í Kaupmannahöfn í vikunni. Magnús Þór Jónsson formaður sat fundinn fyrir hönd KÍ.
Í kennaravikunni fór Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambandsins sem fulltrúi, Kennarasambandsins, á fyrsta samráðsfund samninganefnda á meðal Norrænu kennarasamtakanna, NLS.
Á fundinum sem fram fór í Kaupmannahöfn var farið yfir stærstu þættina í umhverfi kjarasamninga á vettvangi hvers og lands og hvers stéttarfélags með að markmiði að efla samráð og samtal milli landanna um kjaramál, félagsfólki til heilla.
Magnús segir fundinn hafa heppnast afar vel. Bæði hafi verið fróðlegt að kynnast samningsumhverfi, sem bæði væri líkt okkar og ólíkt, en ekki síður að heyra af áskorunum sem hafa verið uppi í veruleika kollega á hinum Norðurlöndum, en verkföll hafa verið hjá kennurum í Finnlandi og Noregi nýverið og mikil undiralda í öllum löndunum sjö sem áttu fulltrúa á fundinum.
Framhald verður á fundum þessa hóps og stefnt er að því að auka verulega upplýsingagjöf til almennra félagsmanna á starfskjörum innan Norðurlandanna. Væntingar eru líka til þess að slíkt samstarf gæti aðstoðað við kjarasamningsgerð félaganna á meðan á þeim stendur.