Fulltrúafundur FF mótmælir sparnaðaráformum ríkisins

„Áform um svo harkalegan niðurskurð til málaflokksins eru í besta falli undarleg í ljósi þess að von er á fjölmennum árgöngum inn í framhaldsskóla landsins á næstu fimm árum.“
Þetta kemur fram í ályktun fulltrúafundar Félags framhaldsskólakennara sem fór fram 7. apríl. Í ályktuninni er niðurskurðaráformum ríkisins á framhaldsskólastiginu, samkvæmt fjármálaáætlun fjármála- og efnahagsráðherra fyrir árin 2026-2030, harðlega mótmælt. Samkvæmt áætluninni er gert ráð fyrir rúmlega fimm prósenta niðurskurði á tímabilinu. Hér fyrir neðan má lesa ályktunina í heild.
Ályktun fulltrúafundar Félags framhaldsskólakennara, 7. apríl 2025
Fulltrúafundur Félags framhaldsskólakennara mótmælir harðlega sparnaðaráformum ríkisins á framhaldsskólastiginu sem birtast í fjármálaáætlun fjármála- og efnahagsráðherra fyrir árin 2026-2030. Áætlunin gerir ráð fyrir meira en 5% niðurskurði á tímabilinu til framhaldsskólastigsins.
Áform um svo harkalegan niðurskurð til málaflokksins eru í besta falli undarleg í ljósi þess að von er á fjölmennum árgöngum inn í framhaldsskóla landsins á næstu fimm árum eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Á næstu tveimur árum eru líkur til þess að nemendum fjölgi hér um bil um 650 nemendur, sem samsvarar einum meðalstórum framhaldsskóla.

Fyrirhugaður niðurskurður rímar alls ekki við stefnu stjórnvalda í málaflokknum. Stefnt er að því að fjölga nemendum í iðn- og verkgreinum en það nám er mun dýrara en annað nám. Einnig er ráðgert að koma í ríkara mæli til móts við sífellt fjölbreyttari nemendahóp hvað varðar tungumála- og menningarbakgrunn, námsstöðu og sérþarfir, meðal annars með aukinni íslenskukennslu og öðrum farsældarstuðningi.
Framhaldsskólastigið verður að geta staðið undir lögbundnu hlutverki sínu sem er að bjóða öllum nemendum nám við hæfi með velferð og farsæld að leiðarljósi. Vandséð að það náist ef fyrirhugaður niðurskurður verður að veruleika.
Félag framhaldsskólakennara leggur fast að fjármála- og efnahagsráðherra ásamt ríkisstjórninni allri, fjárlaganefnd, allsherjar- og menntamálanefnd og öllum þingmönnum að tryggja að framhaldsskólastigið verði fjármagnað sómasamlega á næstu árum svo að einhver von sé um að metnaðarfull stefna stjórnvalda í málaflokknum til ársins 2030 nái fram að ganga.