Fulltrúafundur FF hefur farið fram

Fréttir|25. september 2020

Farsóttin og áhrif hennar á starfsemi framhaldsskóla var meðal þess sem rætt var um á nýafstöðnum fulltrúafundi Félags framhaldsskólakennara. Fulltrúafundurinn fór fram á netinu.

Félag framhaldsskólakennara hélt árlegan fulltrúafund sinn dagana 24. og 25. september. Vegna aðstæðna var fundurinn haldinn með hjálp Teams-fjarfundakerfisins. Fundinum lauk síðdegis í dag. 

Auk venjulegra ársfundastarfa, skýrslu stjórnar, reikninga, kosninga o.þ.h. var fjallað um þá stöðu sem uppi er í framhaldsskólum á Íslandi í farsóttarástandinu, og áhrifum hennar á nám og störf í skólunum.

Fjallað var um kjaramál, en samningar framhaldsskólakennara losna um áramótin. Þá voru ýmis mál sem tengjast starfi félagsins og skólamálum á Íslandi voru einnig rædd.

 

Kosið var rafrænt til nokkurra embætta á vegum félagsins

  • Sólveig Ebba Ólafsdóttir (MK) var kjörin varamaður í stjórn félagsins
  • Kolbrún Elfa Sigurðardóttir (MR), Magnús Hlynur Haraldsson (BHS) og Garðar G. Norðdahl (FVA) voru kjörin í samninganefnd. 
  • Gísli Örn Bragason (VÍ) var kjörinn varamaður í stjórn Vísindasjóðs FF og FS.
  • Þorgerður Aðalgeirsdóttir (VÍ) og Guðmundur Grétar Karlsson (FSS) voru kosnir varamenn í uppstillingarnefnd.