Fullt út úr dyrum á fundi tónlistarskólakennara

Fréttir|21. október 2014

Mikill baráttuhugur einkenndi fjölmennan fund tónlistarskólakennara í Kaldalóni í Hörpu í kvöld. Fullt var út úr dyrum og þurftu margir að gera sér að góðu að standa eða sitja í tröppum.

Á fundinum varð ljóst að verkall yrði ekki umflúið og hæfist á miðnætti. Sigrún Grendal, formaður Félags tónlistarkennara, ávarpaði fundinn og sagði samningafundi hafa lokið á sjöunda tímanum. Hún sagði að samninganefndin hefði lagt sig mjög fram síðasta sólarhringinn. „Staðan er sú að fundi lauk og það er ljóst að það skellur á verkfall á morgun,“ sagði Sigrún. Hún bætti við að hún væri bjartsýn á að að verkfallið yrði stutt. „Við erum hreykin af okkar tónlistarskólakerfi og okkur langar að leggja okkar af mörkum til að halda áfram vinnu og bæta menntun með okkar innleggi,“ sagði Sigrún.

Dr. Ágúst Einarsson prófessor flutti ávarp og ræddi meðal annars virði tónlistar. Hann sagðist telja að við skildum ekki hvers virði tónlist væri, hún væri ekki aðeins vanmetin, heldur stórlega vanmetin, líka þegar mælt væri í peningum. "En virði tónlistar mælist þó ekki aðeins í peningum heldur í mörgu öðru eins og menningarlegu virði, ánægju og vellíðan. Tónlist bætir samskipti fólks.“

Ágúst sagði að í nýjustu hagfræðirannsóknum sem varða tónlist og skipulag í þeim efnum væri meðal annars fjallað um hvernig ólíkir opinberir aðilar tækjust á og hvernig hagsmunum er stundum fórnað við þær aðstæður. „Hér á landi hefur þessi góða blanda einkaaðila og opinberra aðila í tónlistarkennslu reynst ákaflega vel en opinberu aðilarnir eru tveir, ríki og sveitarfélög. Oft fara hagsmunir þeirra ekki saman og togstreitan milli ríkisstjórnar og sveitarstjórnar er algeng. Það er einfaldlega ekki ásættanlegt að kennarar gjaldi þeirrar togstreitu,“ sagði Ágúst.

Hjálmar H. Ragnarsson, tónskáld og fyrrum rektor LHÍ, sagði í sinni ræðu að íslenska tónlistarskólakerfið væri einstakt, undraverður árangur hefði náðst á í síðustu árum og áratugum og kerfið væri undirstaða allrar tónlistariðkunar á Íslandi. Tónlistin væri samofin öllu okkar lífi í samfélaginu. „Hún er límið sem heldur samfélaginu saman,“ sagði Hjálmar. „Við skynjum hvert annað í tónlist og við skynjum okkur sjálf í tónlist.“

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri ávarpaði fundinn og sagðist vonsvikinn yfir að samningar hefðu ekki náðst í tíma. Hann sagði kröfu tónlistarskólakennara um að njóta sömu kjara og aðrir kennarar vera sanngjarna. Þá sagðist hann vona að verkfall yrði stutt og samningum náð sem fyrst.

Pallborðsumræður fóru því næst fram og tóku þátt Björn Blöndal, frá Bjartri framtíð, Bjarkey Gunnarsdóttir, frá VG, Guðbjartur Hannesson, frá Samfylkingu, Guðríður Helgadóttir, foreldri tónlistarnemenda og Björn Leifur Gunnarsson pírati. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks komu ekki til fundarins. 

Tónlistaratriði fluttu Jón Björgvinsson og Stefán Ómar Jakobsson, Kristinn Sigmundsson og Jónas Ingimundarson, Aladár Rácz og Einar Jóhannesson. Almennur söngur í lokin var undir stjórn Árna Harðarsonar. Þá var Gunnar Ben, fagstjóri við LHÍ, með atriði um miðbik fundarins.