Fullkomið andvaraleysi gagnvart skaðsemi hávaða í kennslurýmum

Einhver stærsti meinvaldur í nútímaþjóðfélagi er hávaði. Ekki síst í skólum þar sem hann kemur í veg fyrir skilvirka kennslu, að nemendur geti heyrt og að rödd kennara geti borist, skrifar Dr. Valdís Ingibjörg Jónsdóttir, sérfræðingur í rödd.
Það sem trúlega veldur þessu sinnu- og andvaraleysi almennings er þekkingarleysi sem ekki síst birtist í gildandi lögum um hávaða og hávaðamörk, þ.e.a.s. hvað hávaði má verða mikill áður en hann verður skaðvaldur.
Lítum á reglugerðina sem liggur að baki mælingum Vinnueftirlits á hávaða í skólum. Í reglugerð um varnir gegn álagi vegna hávaða á vinnustöðum (Nr. 921/2008) segir að hávaði yfir 8 stunda vinnudag megi ekki fara yfir 85 dB(A) - svokölluð efri viðmiðunarmörk, en 80 dB(A) eru tiltekin sem neðri viðmiðunarmörk þ.e.a.s. þegar grípa þarf til sérstakra varúðarráðstafana til varnar heilsutjóni, og þá er átt við að hávaði skaði heyrn.
En hvers vegna eru sömu viðmiðunarmörk notuð í hávaðamælingum í skólum og verksmiðjum? Er verið að kanna hvort hávaði í skólum sé það hár að hann geti skaðað heyrn fullorðinna? Sé það svo þá er hann fyrir löngu kominn yfir þau mörk að hægt sé að eiga í vitrænum tjáskiptum. Það er sú starfsemi sem þarf að lögvernda í skólum. Þegar fullorðnir eiga í hlut er slík starfsemi lögvernduð, sbr. Reglugerð um varnir gegn álagi vegna hávaða á vinnustöðum nr. 921/2006 1 kafli 5 gr.:
Sérstök vinnusvæði:
Í stjórnklefum, verkstjórnarherbergjum og öðrum stöðum þar sem mikilvægt er að samræður geti átt sér stað skal að því stefnt að hávaði fari ekki yfir 65 dB(A) að jafnaði á vinnutíma.
Í mat- og kaffistofum er æskilegt að hávaði fari ekki yfir 60 dB(A) að jafnaði þann tíma sem notkun stendur yfir.
Á skrifstofum og öðrum stöðum þar sem gerðar eru miklar kröfur til einbeitingar og samræður eiga að geta átt sér stað óhindrað skal leitast við að hávaði fari ekki yfir 50 dB(A) að jafnaði á vinnutíma.
Ekki einu orði er minnst á skóla, jafnvel þótt huglæg starfsemi – samkvæmt lögum – eigi að fara þar fram. Þarna er dB (A) dottið ofan í 50 – 60 dB(A) sem eru þá talin vera þau hávaðamörk sem hávaði má ekki fara yfir á stöðum þar sem tjáskipti og einbeiting eiga sér stað hjá fullorðnum. Athyglisverð er greinin þar sem talað er um mat– og kaffistofur því að í matsölum skóla hefur hávaði mælst um og yfir 80dB.
Reglugerð um hávaða (drög 31.maí 2007; 10 grein) er athyglisverð:
Á stöðum þar sem börn sækja þjónustu og dvelja í lengri tíma s.s. skólum ber að líta á 80dB(A) sem hámark leyfilegs viðvarandi hávaða. Heilbrigðisnefnd getur krafist sérstakra ráðstafana til að lækka hljóðstig þegar hætta er talin á að hávaði geti valdið óþægindum eða skaða. Sérstaklega skal þá tekið tillit til þess að börn eru viðkvæmari fyrir hávaða en fullorðnir.
Hver lærir í 80 dB hávaða? Þessi hávaði er á neðri viðbragðsmörkum – samkvæmt lögum – þegar gera þarf ráðstafanir til að verja heyrn fullorðinna gegn hávaðanum. Börn þola síður hávaða en fullorðnir vegna þess að heyrnarfæri þeirra hafa ekki náð fullum þroska og hlust þeirra er styttri.

Málþroski á sér stað á fyrstu fjórum árum ævinnar. Málþroska er hætta búin ef barn dvelur í hávaða. Þess má geta að meginþorri barna dvelur á leikskólum allt upp í átta tíma á dag.
Þetta er alvarlegt í ljósi þess að hávaðaþolmörk samkvæmt lögum byggjast á þolmörkum fullorðinna. Fullorðnir standa einnig betur að vígi í hávaða þar sem þeir geta heyrt það sem þeir vilja heyra mun betur en börn. Bæði eru heyrnarfæri fullorðinna þroskaðri og þeir hafa betra vald á máli sem auðveldar þeim að skilja það sem sagt er þótt þeir heyri það ekki greinilega. Auk þess eru börn oftast nær hávaðauppsprettunni sem oftast er hávaði frá öðrum börnum eða skellir frá gólfi eða borðum.
Málþroski á sér stað á fyrstu fjórum árum ævinnar. Málþroska er hætta búin ef barn dvelur í hávaða. Þess má geta að meginþorri barna dvelur á leikskólum allt upp í átta tíma á dag.
Hlutverk Vinnueftirlits og Heilbrigðiseftirlits þegar kemur að hávaða
Hlutverk Vinnueftirlits ríkisins er að sjá um atvinnuöryggi fullorðinna. Þarna er ákveðið flækjusvið því skólar eru vinnustaðir bæði fullorðinna og barna (sbr. í lögum um grunnskóla nr. 91/2008 „Grunnskóli er vinnustaður nemenda“).
Samkvæmt lögum ber Heilbrigðiseftirliti að sjá um velferð barna en Vinnueftirliti um velferð fullorðinna. Það er hins vegar Vinnueftirlitið sem sér að öllu jafna um hávaðamælingar í skólum og gerir það á forsendum fullorðinna og þá út frá því að hávaði
skaði ekki heyrn þeirra.
11. grein í reglugerð 724/2008 um eftirlit í sambandi við hávaða er athyglisverð. Þar kemur fram að Umhverfisstofnun, í samstarfi við Skipulagsstofnun, gefi út leiðbeiningar um „viðmiðanir um hljóðvistarkröfur í leik- og grunnskólum og annars staðar sem börn dvelja og hætta er talin á að hávaði geti valdið þeim ónæði eða verið heilsuspillandi“. Heilbrigðisnefndir skulu hafa eftirlit með framkvæmd reglugerðar þessarar undir yfirumsjón Umhverfisstofnunar. Heilbrigðisnefndir skulu eftir þörfum framkvæma eða láta framkvæma eftirlitsmælingar á hávaða.
Börn þola síður hávaða en fullorðnir vegna þess að heyrnarfæri þeirra hafa ekki náð fullum þroska og hlust þeirra er styttri. Þetta er alvarlegt í ljósi þess að hávaðaþolmörk samkvæmt lögum byggjast á þolmörkum fullorðinna.
Hvergi er minnst á að þeir sem mæla þurfi að hafa til þess sérstaka kunnáttu. Hvergi er minnst á að mæla þurfi hávaðann út frá forsendum barna. Á þá, samkvæmt þessu, að mæla hávaða í skólum á sömu forsendum og hann er mældur í verksmiðjum – hvort hann sé það hár að hann geti skaðað heyrn fullorðinna?
Sú staðreynd að börn séu viðkvæmari gagnvart hávaða en fullorðnir er viðurkennd í lögum, sbr. 724/2008 Reglugerð um hávaða 7. gr. heilsuspillandi hávaði þar sem segir:
Viðmið heilsuspillandi hávaða er 85 desíbel(A) LAeq (jafngildishljóðstig í 8 klst.). Þegar heilsuspillandi áhrif hávaða eru metin, skal sérstaklega hafa í huga eftirfarandi atriði:
a. Styrk hávaðans mældan í desíbelum(A).
b. Tónhæð hávaðans.
c. Hvort hávaðinn er stöðugur eða breytilegur.
d. Daglega tímalengd hávaðans.
e. Tíma sólarhringsins er hávaðinn varir.
f. Heildartímabil, sem ætla má að hávaðinn vari (dagar/vikur).
g. Að börn eru viðkvæmari fyrir hávaða en fullorðnir.
Eðli hávaða og eyðileggingarmáttur hans
Hljóðvist er, samkvæmt íslenskri nútímamálsorðabók, skilgreind sem:
„Orðhlutar: hljóðvist; það hvernig hljóð berst um húsrými“.
Hins vegar er hávaði í lögum (7724/2008 Reglugerð um hávaða) skilgreindur sem:
„Óæskileg eða skaðleg hljóð sem stafa m.a. frá athöfnum fólks, umferð eða atvinnustarfsemi.“
Ekki má blanda saman hljóðvist og hávaða. Hljóðvist, sem kveðið er á um í lögum að skuli vera góð, er engin trygging fyrir því að hávaði geti ekki orðið skaðlegur en slæm hljóðvist eykur hins vegar áhrif hávaða.
Hávaði skiptist í tvennt; annars vegar a) bakgrunnshávaða sem er stöðugur, fyrirsjáanlegur og útreiknanlegur og stafar yfirleitt af tækjum og tólum eins og t.d. skjávörpum og loftræstingarkerfum í skólum, og hins vegar b) erilshávaða sem er óstöðugur, ófyrirsjáanlegur og óútreiknanlegur og stafar af athöfnum, hreyfingum og búkhljóðum lifandi vera, t.d. tali, söng, ræskingum, hlátri og gráti.
Hávaði í skólaumhverfi er fyrst og fremst erilshávaði sem getur verið mismikill. Að því leyti getur verið vafasamt þegar hávaði er mældur að taka meðaltal af hávaðanum á einhverju vissu tímabili ef ekki er jafnframt séð til þess að taka upp mælingatímabilið svo að hægt sé að heyra hvað veldur hávaðanum.
Einnig getur verið vafasamt að mynda einhverja heildarmynd út frá skammtímamælingu sem hefur t.d. átt sér stað þegar hávaði er mældur í 10 mínútur. Ástæðan er sú að ef verið er að mæla hávaða í umhverfi barna þá getur verið um margar breytur að ræða eins og aldur, líðan, athafnir, samsetning hóps. Jafnvel veðurfar getur skipt máli.
Í allri löggjöf er velferð barna höfð að leiðarljósi. Þar á dvöl í hávaða ekki að vera undanskilin. Ýmsar rannsóknir hafa sýnt fram á að dvöl barna í hávaða getur haft neikvæð áhrif á máltöku þeirra, heyrn og líðan. Tökum nokkur dæmi:
- Vellíðan: Óreglulegur bekkjarhávaði getur farið illa í börn.
- Rödd: Raddnotkun í hávaða getur haft skaðleg áhrif á rödd barna.
- Lestrargeta: Hávaði getur til dæmis dregið úr lesskilningi.
- Félagstengsl: Börn sem dvelja í hávaða geta átt erfiðara með að mynda tengsl við félaga og kennara.
- Hlustun: Hávaði getur drekkt talhljóðum, skrumskælt og gert þau óskiljanleg. Hlustun verður erfiðari og hætt er við að hlustunarlöngun og hlustunargeta hverfi.
- Athygli og einbeiting: Hávaði dregur úr einbeitingu og skerðir athygli.
- Minni: Börn sem dvelja í hávaða geta átt í erfiðleikum með orðaminni (skammtímaminni á orð), setningaminni og upprifjunarminni.
- Málþroski: Hávaði getur haft neikvæð áhrif á getu til að skilja mál og hávaði truflar meira skilning barna en fullorðinna á mæltu máli.
