Fullbókað á málþingið Nema hvað? Efling list- og verkgreina – hægt verður að fylgjast með streymi

Yfirskrift málþingsins er Nema hvað? Efling list- og verkgreina og verður sjónum beint að aðferðum við að efla list- og verknám í skólakerfinu.
Fullbókað er á málþing Skólamálaráðs KÍ og kennara í list- og verkgreinum sem haldið verður í Nauthóli fimmtudaginn 22. mars næstkomandi. Yfirskrift málþingsins er Nema hvað? Efling list- og verkgreina og verður sjónum beint að aðferðum við að efla list- og verknám í skólakerfinu.
ATHYGLI ER VAKIN Á AÐ MÁLÞINGINU VERÐUR STREYMT Á VEF NETSAMFÉLAGSINS (www.netsamfelag.is).
OPINN HUGMYNDAVEGGUR: Þeir sem taka þátt í málþinginu í streymi geta skráð hugmyndir sínar um aðferðir til að efla list- og verknám og aðgerðir til að gera það á hugmyndavegginn (Padlet) eins og þeir væru á staðnum, slóðin https://goo.gl/YW6i13 .
Málþingið fer fram fimmtudaginn 22. mars 2018 og stendur frá klukkan 13:00 til 16:30.
Í kynningu segir: „Það sem sameinar list- og verknám er áhersla á verkkunnáttu, tækni, sköpun, fagurfræði og gildi, efnisþekkingu, líkamsbeitingu, túlkun og tjáningu. Deigla hraðstígra samfélags- og tæknibreytinga beinir kastljósinu í vaxandi mæli að þessum þáttum í menntun og skólastarfi. Lengi hefur verið rætt um eflingu list og verknáms og ekki skortir stefnu um það.
- Hvert er samhengið milli stefnu og framkvæmdar?
- Hvernig á að koma stefnu um eflingu list- og verknáms í framkvæmd?
- Hvað þarf til?
- Hver er sýnin á það?
DAGSKRÁ MÁLÞINGSINS
Kl. 13:00 Setning. Aðalheiður Steingrímsdóttir, varaformaður KÍ.
Kl. 13:10 Ávarp. Mennta- og menningarmálaráðherra.
Kl. 13:25 Skólafólk í leikskóla, grunnskóla, tónlistarskóla og framhaldsskóla.
- Ársæll Guðmundsson, skólameistari Borgarholtsskóla.
- Engilbert Imsland, grunnskólakennari Hólabrekkuskóla.
- Michelle Sonia Horne, verkefnastjóri skapandi starfs leikskólanum Stekkjarási.
- Sigrún Grendal, formaður Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum.
Kl. 14:25 Kaffihlé í 20 mínútur.
Kl. 14:45 Svanborg R. Jónsdóttir, dósent í listum og skapandi starfi Menntavísindasviði HÍ.
Kl. 15:00 Soffía Vagnsdóttir, skrifstofustjóri grunnskólaskrifstofu skóla- og frístundasviðs
Reykjavíkurborgar.
Kl. 15:15 Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins.
Kl. 15:30 Pallborðsumræður með þátttöku fundarmanna: Hvað svo? Hvað förum við með héðan í dag til að nota og hvernig? Í pallborði eru:
- Ársæll Guðmundsson, skólameistari Borgarholtsskóla.
- Engilbert Imsland, grunnskólakennari Hólabrekkuskóla.
- Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins.
- Íva Sigrún Björnsdóttir, sérfræðingur mennta- og menningarmálaráðuneyti.
- Soffía Vagnsdóttir, skrifstofustjóri grunnskólaskrifstofu skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar.
- Svanborg R. Jónsdóttir, dósent í listum og skapandi starfi Menntavísindasviði HÍ.
Kl. 16:30 Málþingslok.
Málþingsstjóri verður Þorsteinn Sæberg, formaður Skólastjórafélags Íslands. Þeir sem fylgjast með málþinginu á netinu geta sent fyrirspurnir á thorsteinn@ki.is.
Í lokin verða pallborðsumræður með þátttöku fundarmanna.
Myllumerki málþinsins: #nemahvad.
Upptaka af þinginu verður gerð aðgengileg á vef KÍ.