Full samstaða um boðun verkfalla

Fréttir|10. október 2024

Allir félagsmenn í FG, FL og SÍ, eða 100%, sögðu já við boðun verkfalls. Um er að ræða félagsmenn í fjórum leikskólum og þremur grunnskólum. Mikill og skýr stuðningur er jafnframt við boðun verkfalls í Fjölbrautaskóla Suðurlands en þar sögðu 81% já við boðun verkfalls.

100% félagsmanna í Félagi leikskólakennara sögðu já við boðun verkfalls. Kjörsókn var 100% í þremur leikskólanna og 98,7 prósent í þeim fjórða.

Leikskólarnir sem um ræðir eru Leikskóli Seltjarnarness, Drafnarsteinn í Reykjavík, Ársalir á Sauðárkróki og Holt í Reykjanesbæ.

Niðurstaðan í grunnskólunum var á sömu nótum. Þar kusu félagsmenn í Félagi grunnskólakennara og Skólastjórafélagi Íslands og sögðu allir, eða 100%, já við boðun verkfalls. Kjörsókn var 100% í öllum tilfellum utan einu þar sem hún var 95,8%.

Grunnskólarnir sem um ræðir eru Laugalækjarskóli í Reykjavík, Lundarskóli á Akureyri og Áslandsskóli í Hafnarfirði.

Boðað er til verkfalls í einum framhaldsskóla, Fjölbrautaskóla Suðurlands. Alls sögðu 81% já við boðun verkfalls í FSU og var kjörsókn 92%.

Boðun verkfalla í fyrrnefndum skólum liggur því fyrir og hefjast þau 29. október næstkomandi hafi kjarasamningar ekki náðst.

Næstu skref

Atkvæðagreiðsla um boðun verkfalls í tónlistarskóla stendur yfir. Henni lýkur klukkan 15 á morgun og kemur þá í ljós hvort níundi skólinn bætist við. Verkfall í tónlistarskólanum er boðað 29. október næstkomandi hafi samningar ekki náðst. Annar framhaldsskóli undirbýr aðgerðir.

Ríkissáttasemjari hefur boðað til fundar á þriðjudag og mætir þá viðræðunefnd Kennarasambandsins sem er skipuð formönnum aðildarfélaganna sjö og formanni KÍ, til fundar með samninganefndum sveitarfélaga og ríkisins.