FT og Sambandið gera samkomulag um viðræðuáætlun

Fréttir|19. október 2021

Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum og Samband íslenskra sveitarfélaga hafa samþykkt viðræðuáætlun vegna komandi kjarasamningsgerðar.

Sigrún Grendal, formaður Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum, og Inga Rún Ólafsdóttir, sviðsstjóri kjarasviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga, skrifuðu fyrr í dag undir samkomulag um viðræðuáætlun. 

Viðræðuáætlunin snýr að komandi kjaraviðræðum og er markmið hennar að samningar náist fyrir áramót þannig að nýr kjarasamningur FT og Sambandsins geti tekið við af þeim sem nú er í gildi. 

Gert er ráð fyrir að samningsaðilar komi saman í upphafi nóvember. Þá kynni samninganefndir helstu áherslur og markmið í komandi kjaraviðræðum. 

FT og Sambandið skrifuðu undir núgildandi samning í desember 2020 og er gildistími samningsins, sem fyrr segir, 31. desember 2021.