FT kallar eftir framboðum í stjórn, nefndir og ráð

Fréttir|10. febrúar 2026

Stjórn Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum kallar eftir framboðum til trúnaðarstarfa fyrir félagið á næsta kjörtímabili, 2026 til 2030.

Stjórn FT hefur jafnframt ákveðið að aðalfundur félagsins fari fram 11. apríl næstkomandi.

Frestur til að bjóða sig fram í stjórn FT er til kl. 12:00 á hádegi, miðvikudaginn 25. febrúar 2026.

Rafræn atkvæðagreiðsla meðal félagsfólks fer fram dagana 9.-12. mars.

Fyrirkomulag framboða

Þau sem hyggjast bjóða sig fram í framangreind trúnaðarstörf, einnig þau sem sækjast eftir endurkjöri, skulu senda tilkynningu um framboð á netfangið ft@ki.is. Í póstinum komi fram nafn, kennitala og vinnustaður.

Framboð í fagráð FT

Auglýst er eftir framboðum til fjögurra svæðisbundinna fulltrúa í fagráði FT fyrir kjörtímabilið 2026 til 2030.

Tilnefningu/kosningu svæðisbundinna fulltrúa fagráðs FT skal lokið fyrir aðalfund félagsins.Frestur til að bjóða sig fram er til kl. 16:00 miðvikudaginn 18. mars.

Áhugasamir sendi póst á netfangið ft@ki.is þar sem fram komi nafn, kennitala og vinnustaður.

Í fagráði tónlistarskóla sitja fjórir fulltrúar, sbr. eftirfarandi svæðaskiptingu, auk stjórnar FT:

  • Frá Vesturlandi og Vestfjörðum – einn fulltrúi
  • Frá Norður- og Austurlandi – einn fulltrúi
  • Frá Kraganum, Suðurlandi og Suðurnesjum – einn fulltrúi
  • Frá Reykjavík – einn fulltrúi

Trúnaðarstörf sem kosið er til á aðalfundi FT

Kosning þriggja fulltrúa í samninganefnd (sem auk stjórnar FT mynda samninganefnd félagsins)

Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga og eins til vara.

Óskað er eftir að framboð berist fyrir kl. 16:00 miðvikudaginn 18. mars á netfangið ft@ki.is þar sem fram komi nafn, kennitala og vinnustaður.