FT auglýsir eftir þjónustufulltrúa

Fréttir|3. apríl 2024

Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum auglýsir til umsóknar 50% starf á skrifstofu félagsins.

Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum (FT) auglýsir laust til umsóknar 50% starf þjónustufulltrúa. Leitað er að talnaglöggum einstaklingi sem er tilbúinn til að takast á við fjölbreytt  verkefni. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.  

Starfssvið

  • Þjónusta við Starfsmenntunarsjóð FT, s.s. samskipti við félagsfólk, úrvinnsla umsókna og undirbúningur funda.
  • Þjónusta við félagsfólk á sviði kjara- og réttindamála, s.s. úrvinnsla erinda, upplýsingagjöf og tilfallandi útreikningar.
  • Önnur verkefni.

 

Hæfniskröfur

  • Menntun og reynsla sem nýtist í starfi.
  • Þekking á kjarasamningum, launa- og réttindamálum er kostur.
  • Góð samskiptahæfni, rík þjónustulund og geta til að vinna í krefjandi umhverfi.
  • Frumkvæði, metnaður, nákvæm og öguð vinnubrögð.
  • Góð almenn tölvukunnátta, góð færni í Excel.
  • Mjög góð íslenskukunnátta og færni í ensku.

 

Umsóknarfrestur er til og með 10. apríl 2024

Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.

Umsókn um starfið skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

Umsjón með starfinu hafa Auður Bjarnadóttir (audur@vinnvinn.is) og Margrét Stefánsdóttir (margret@vinnvinn.is) hjá Vinnvinn.