FSL vísar kjaraviðræðum til sáttasemjara

Fréttir|1. júlí 2014

Félag stjórnenda leikskóla hefur ákveðið að vísa kjaraviðræðum við Samband íslenskra sveitarfélaga til ríkissáttasemjara. Kjarasamningur FSL rann út 31. janúar síðastliðinn. Fundað hefur verið stíft síðan um miðjan júní en viðræður hafa ekki skilað árangri. 

Félag stjórnenda leikskóla er síðasta aðildarfélagið innan KÍ til að vísa kjaradeilu sinni til sáttasemjara á þessu ári. Auk FSL á Félag tónlistarskólakennara í kjaraviðræðum við Sambandið. Sáttasemjari mun boða til næsta fundar samningsaðila en ekki liggur fyrir hvenær það verður.