FSL sendir FT baráttukveðjur
Fréttir|24. október 2014
Félag stjórnenda leikskóla sendir stjórnendum og kennurum í Félagi tónlistarskólakennara baráttukveðjur. Stjórn FSL furðar sig á því að skilja eigi stjórnendur og kennara í tónlistarskólum eftir í launakjörum og að störf þeirra séu ekki metin til jafns við aðra stjórnenda- og kennarahópa innan Kennarasambands Íslands.
Félag stjórnenda leikskóla lýsir fullri samstöðu með Félagi tónlistarskólakennara í baráttunni fyrir sanngjörnum kröfum.