FSL hvetur Fjarðabyggð til að hætta við breytingar

„FSL hefur ásamt stjórnendum fræðslumála hjá sveitarfélögunum bent á mikilvægi þess að aukið verði við stjórnunarþáttinn í leikskólum og ekki síst er kemur að starfi aðstoðarleikskólastjóra," segir í nýrri ályktun Félags stjórnenda leikskóla.
Félag stjórnenda leikskóla hefur sent frá sér ályktun þar sem lagt er til að fyrirhugaðar breytingar á skólastarfi í Fjarðabyggð verði dregnar til baka. Enda verði ekki séð að fyrirhugaðar breytingar séu til þess fallnar að auka gæði í leikskólastarfi. Þá er þeirri hugmynd hafnað að fagstjóri á miðlægri skrifstofu geti sinnt störfum aðstoðarleikskólastjóra enda gegni þeir mikilvægu hlutverk í daglegu starfi leikskólanna.
Ályktun FSL hljóðar svo
Félag stjórnenda leikskóla hvetur sveitarstjórn Fjarðabyggðar til að láta þegar í stað af fyrirhuguðum breytingum á skólastarfi, áður en lagt er af stað með verkefni sem auðveldlega gæti valdið skaða á skólastarfi í Fjarðarbyggð.
Fyrirhugaðar breytingar fela í sér að stjórnunarhlutfall við alla skóla mun minnka og starf aðstoðarleikskólastjóra verða lagt niður. Gert er ráð fyrir að fagstjóri á miðlægri skrifstofu muni koma í stað aðstoðarleikskólastjóra í leikskólum byggðarlagsins.
FSL geldur varhug við þessum hugmyndum og bendir á að umfang stjórnunar í leikskólum hefur aukist verulega síðustu ár. Verkefni skólastjórnenda hafa vaxið að umfangi í tengslum við ýmsar ákvarðanir stjórnvalda. Má þar nefna auknar kröfur til skólastjórnenda í nýlegum farsældarlögum og lögum um miðstöð menntunar og skólaþjónustu.
FSL hefur ásamt stjórnendum fræðslumála hjá sveitarfélögunum bent á mikilvægi þess að aukið verði við stjórnunarþáttinn í leikskólum og ekki síst er kemur að starfi aðstoðarleikskólastjóra.
Stjórnendur þurfa svigrúm og tíma til að sinna starfsmannamálum, þjálfun nýrra starfsmanna og sinna sínu faglega forystuhlutverki.
Aðstoðarleikskólastjórar gegna afar mikilvægu hlutverki í starfsemi leikskóla; þeir þurfa tíma til að sinna sértækum verkefnum, sem hefur farið fjölgandi síðustu ár, og vera reiðubúnir að leysa leikskólastjóra af með stuttum fyrirvara.
FSL lítur svo á að tækifæri séu fólgin í að nýta krafta aðstoðarleikskólastjóra enn frekar enda búa þeir yfir oftar en ekki yfir mikilvægri fagþekkingu og starfsreynslu. Aðstoðarleikskólastjórar búa yfir þekkingu á öllu starfi leikskólans; jafnt því hugmyndafræðilega og því praktíska. Farsælla væri að búa svo um hnúta að aðstoðarskólastjórar fái aukið stjórnunarhlutfall, meiri tíma til að ígrunda hið faglega starf og sinna mannauð leikskólans af alúð.
FSL getur ekki séð að fyrirhugaðar breytingar á skólamálum í Fjarðabyggð séu til þess fallnar að auka gæði í leikskólastarfi.
Reykjavík, 8. mars 2024
Stjórn Félags stjórnenda leikskóla