FSL fagnar endurskoðaðri forgangsröðun
Stjórn Félags stjórnenda leikskóla telur fagnaðarefni að Reykjavíkurborg hafi endurskoðað forgangsröðun í þágu skólastarfs í borginni. Þetta er meðal þess sem kemur fram í ályktun sem stjórn FSL samþykkti síðastliðinn föstudag í kjölfar þess að borgarstjóri kynnti nýja aðgerðaáætlun í málefnum leikskóla og grunnskóla borgarinnar.
Í ályktun FSL er því jafnframt fagnað að nú verði gert ráð tíma til undirbúnings og samráðs. Þá kemur fram að nýliðun í stétt leikskólakennara verði að vera forgangsmál og að FSL sé nú sem fyrr reiðubúið til samstarfs um að finna leiðir til þess.
Ályktun stjórnar FSL hljóðar svo:
Stjórn Félags stjórnenda leikskóla (FSL) fagnar því að Reykjavíkurborg hafi endurskoðað forgangsröðun í þágu skólastarfs í borginni. Það hefur sýnt sig að það borgar sig til skemmri og lengri tíma að hlusta á sérfræðinga í rekstri leikskóla og fylgja þeirra ráðum og ábendingum.
Félag stjórnenda leikskóla hefur ítrekað bent á að í fjárveitingum til leikskóla verður að gera ráð fyrir tíma til undirbúnings og samráðs. Þeirri viðleitni í plagginu er fagnað. Það að fara fram á við stjórnendur að taka eigin launahækkanir af fjármunum til reksturs leikskólans gekk eðli málsins samkvæmt ekki upp og því er gott að gert er ráð fyrir framlagi vegna kjarasamninga. Brýn þörf er á að heimild um launuð námsleyfi sé nýtt og vonast FSL til þess að gert verði ráð fyrir því í náinni framtíð.
Nýliðun leikskólakennara verður að vera forgangsatriði hjá öllum hagsmunaaðilum. Eftirsóknarvert starfsumhverfi er lykillinn að því og er FSL reiðubúið til samstarfs eftir sem áður um leiðir til þess.
Fagmennska, samstaða og lausnaleit eru einkunnarorð FSL og hefur sýnt sig að það er besta leiðin til árangurs og framfara.
Stjórn FSL, 16. september 2016