FSL blæs til fræðslufunda í haust
Félag stjórnenda leikskóla efnir til fræðslufunda fyrir félagsfólk um land allt nú á haustdögum. Fundaferðin hefst á Ísafirði 21. september og lýkur á Egilsstöðum 7. nóvember. Fræðslufundirnir verða með sama svipuðu sniði alls staðar, fjallað verður um strúktúr FSL og lögfræðingur KÍ fjallar um réttindi félaga, skyldur og ráðningarmál svo dæmi sé tekið.
Drög að dagskrá eru sem hér segir:
- Kl. 9:30 Ingibjörg Kristleifsdóttir setur fundinn og kynnir strúktúr FSL í stuttu máli.
- Kl. 9.40 Réttindi, skyldur, ráðningar. Anna Rós Sigmundsdóttir, lögfræðingur KÍ.
- Kl. 12.00 Hádegishlé
- Kl. 12.30 Réttindi, skyldur, ráðningar. Anna Rós heldur áfram þar sem frá var horfið.
- Kl. 14.00 Þrautseigja- vöxtur og vellíðan leikskólastjórnenda. Guðrún Snorradóttir hefur umsjón með þessum lið.
- Kl. 15.30 Fundarslit.
Fundardagar, fundarstaðir og skráning
21.september
Ísafjörður skráning hjá Helgu Björk: solborg@isafjordur.is.
27. september
Borgarnes skráning hjá Guðrúnu: gudrun.bragadottir@akranes.is.
28. september
Akureyri skráning hjá Jakobínu: jakas@akureyri.is.
11. október
Reykjanes og Kragi skráning hjá Fríði: fridur@vortex.is og Elínu: elin.einarsdottir@leikskolinnholt.is og Soffíu: soffia@nesid.is. Haldið í Garðaholti á Álftanesi.
28. október
Suðurland skráning hjá Sigrúnu Björk: leikskolinn@laugaland.is. Haldið á Árhúsum á Hellu.
31. október
Norðvesturland skráning hjá Guðrúnu Láru: leikskolinn@hunathing.i. Haldið á Laugabakka.
2. nóvember
Reykjavík skráning hjá Þórunni Gyðu: thorunn.gyda.bjornsdottir@reykjavik.is og Gyðu: gyda.gudmundsdottir@reykjanes.is.
7. nóvember
Egilsstaðir skráning hjá Siggu Dís: sigridur@egilsstadir.is.
Athugið: Aðalmenn auglýsa betur staðsetningu þegar nær dregur hjá hverjum og einum. Tímasetningar á dagskrá geta breyst innan rammans sem er 9.30-15.30 nema í Kraga/Reykjanes og Reykjavík þar er hann klukkan 9.00-15.00.