Fróðleg og forvitnileg FRÆ framundan

Fjöldi fróðlegra fræðsluerinda eru á dagskrá FRÆ 2025.
FRÆ eru klukkustundalöng fræðsluerindi á vegum Fræðslunefndar KÍ sem fara fram fyrsta þriðjudag í mánuði á milli klukkan 15 og 16 að vori og hausti. Dagskráin í ár er áhugaverð og fyrirlesarar ekki af verri endanum.
Vorfræ
Erindi vorannar fara fram á Teams í febrúar, mars og apríl. Upptökur af erindunum eru birt á vef KÍ í kjölfarið. Halldóra Skúladóttir markþjálfi hefur fræðsluárið á því að fjalla um breytingaskeiðið og vinnustaðinn 4. febrúar. Í fyrirlestrinum, sem ætlaður er öllu skólafólki og öllum kynjum, fer Halldóra meðal annars yfir hormónabreytingar karla og kvenna, mismunandi stig breytingaskeiðsins og áhrif þess á vinnustöðum. Hér er hægt að lesa meira um erindi Halldóru.

Breytingaskeiðið er meira en bara hitkóf og pirringur, einkennin geta reynst sumum konum erfið, haft áhrif á sambönd, atvinnu, afkomu og framtíðarheilsu. Mikilvægt er að allir skilji hver áhrifin geta verið til þess að auka skilning, stuðning og stuðla að breytingaskeiðsvænum vinnustað.
Þann 4. mars fjallar svo Soffía Ámundadóttir kennari um ofbeldi gegn kennurum en hún rannsakaði reynslu skólastjórnenda af ofbeldi af hálfu nemenda í meistaraverkefni sínu í stjórnun menntastofnana. Niðurstöðurnar vekja upp áleitnar spurningar um ofbeldi nemenda og hvaða verkfæri stjórnendur hafa til að leysa slík mál. Til að stöðva ofbeldið þarf að hafa stífan ramma og afleiðingar við hegðun. Ábyrgð skólafólks er mikil og mikilvægt er að koma til móts við þarfir nemenda og hjálpa þeim að þroskast við öruggar aðstæður. Hér er hægt að lesa meira um erindi Soffíu.
Komið er að Róberti Marshall, útiþjálfara og leiðsögumanni 1. apríl. Þá fjallar hann um útiveru og hreyfingu og einna helst um hvernig hægt er að ná hinu mikilvæga jafnvægi á milli vinnu, fjölskyldulífs, hvíldar og leiktíma fyrir sjálfan sig. Einnig býður hann upp á skipulagða göngu fyrir þátttakendur, einskonar verklega útfærslu á fyrirlestrinum. Nánari upplýsingar verða birtar síðar. Hér er hægt að lesa meira um framlag Róberts.
Vetrarfræ
Haustönnin hefst á erindi Sveinlaugar Sigurðardóttur kennara um útikennslu þriðjudaginn 2. september. Ragnar Þór Pétursson, kennari og fyrrverandi formaður KÍ, tekur svo við og fjallar um gervigreind og notkun hennar í skólastarfi þriðjudaginn 7. október.
Í nóvember er umfjöllunarefnið húmor í kennslu og Ásgeir Þór Tómasson bakari og fagstjóri bakaradeildar Hótel- og matvælaskóla MK, lýkur svo fundaröð ársins á konfektgerðarkennslu í aðdraganda hátíðanna, þriðjudaginn 2. desember.