Fróðleg erindi á trúnaðarmannafræðslu

Trúnaðarmannafræðsla KÍ er í fullum gangi á Grand Hótel Reykjavík. Tæplega 200 trúnaðarmenn sækja fundinn.
Fræðslan hófst klukkan 10 og henni lýkur klukkan 16 í dag. Fundurinn er fyrir alla trúnaðarmenn aðildarfélaga KÍ. Honum er einnig streymt.
Dagskráin er fróðleg og þétt. Jónína Hauksdóttir, varaformaður KÍ og formaður Fræðslunefndar steig fyrst á stokk og fjallaði um skipulag sambandsins og réttindi og skyldur félagsmanna. Guðjón Ágúst Gústafsson, þjónustufulltrúi á félagasviði KÍ og sérfræðingur í kjara- og réttindamálum fjallaði þar á eftir um orlof, fæðingarorlof og veikindarétt. Þá fjölluðu þær Elísabet Anna Vignir og Freydís Þrastardóttir, þjónustufulltrúar sjóða, og Fjóla Ósk Gunnarsdóttir, verkefnastjóri félagatals og sjóða, um sjóði KÍ.
Að loknum hádegismat fjallaði Anna Lilja Sigurðardóttir, lögfræðingur hjá KÍ, um ráðningarmál og starfslok. Sigrún Birna Björnsdóttir, sérfræðingur KÍ í vinnuumhverfis- og jafnréttismálum fjallar þar á eftir um auðlindir og heilbrigði vinnustaða og Katrín Ásmundsdóttir, fulltrúi á útgáfu- og kynningarsviði fer svo stuttlega yfir vefinn og viðeigandi upplýsingar sem þar er að finna fyrir trúnaðarmenn. Að því loknu slítur Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, fundi.