Fréttir frá aðalfundi 2022

Fréttir|6. desember 2022

Aðalfundur Félags sérkennara á Íslandi var haldinn á Grand hótel mánudaginn 28. nóvember 2022. Skýrsla stjórnar var flutt af Sædísi Ósk Harðardóttur formanni. Hún fór yfir starfsemi félagsins og verkefni stjórnar síðastliðið ár.

Aðalfundur Félags sérkennara á Íslandi var haldinn á Grand hótel mánudaginn 28. nóvember 2022.

Skýrsla stjórnar var flutt af Sædísi Ósk Harðardóttur formanni. Hún fór yfir starfsemi félagsins og verkefni stjórnar síðastliðið ár. Sigrún Huld Auðunsdóttir gjaldkeri lagði reikninga síðasta árs fram til samþykktar. Ákveðið var að hækka félagsgjöld um 500 krónur, þau fara þá upp í 5.900.- Einnig var lagt til að hækka áskrift að Glæðum um 1.000.- Áskriftargjald verður þá 4.500.-

Júlíana Vilhjálmsdóttir víkur úr stjórn félagsins og í hennar stað kemur Heiða Ingólfsdóttir sem var varamaður. Björk Alfreðsdóttir sérkennslustjóri í Dalskóla kemur inn sem varamaður í stað Heiðu.

Stjórnin er þá þannig skipuð:
Sædís Ósk Harðardóttir formaður
Jónína Rós Suðmundsdóttir varaformaður
Sigrún Huld Auðunsdóttir gjaldkeri
Lilja Guðrún Björnsdóttir ritari
Heiða Ingólfsdóttir meðstjórnandi

Fjóla Þorvaldsdóttir varamaður
Björk Alfreðsdóttir varamaður

Einnig var kosið í fræðslunefnd félagsins og verður hún skipuð eftirfarandi:

Sigurlaug Vigdís Einarsdóttir
Júlíana Vilhjálmsdóttir
Margrét Björk Björgvinsdóttir
Sigríður Sveinsdóttir

Lesa má fundargerð aðalfundar hér.