Fréttir frá aðalfundi 2021

Fréttir|7. maí 2021

Aðalfundur Faghópsins var haldinn á Google Meet að þessu sinni 20. apríl 2021. Á dagskrá voru hefðbundin aðalfundarstörf.

Aðalfundur Faghópsins var haldinn á Google Meet að þessu sinni 20. apríl s.l. Fjóla formaður flutti skýrslu stjórnar og Sigurhanna gjaldkeri fór yfir reikninga Faghópsins. Það bar helst til tíðinda á þessum aðalfundi að Sigurhanna Sigurjónsdóttir gjaldkeri Faghópsins ákvað að hætta í stjórn, en Sigurhanna hefur verið í stjórn Faghópins nánast frá upphafi. Var henni þökkuð vel unnin störf í þágu Faghópsins. Í hennar stað var kosin Katrín Lilja Hraunfjörð leikskólastjóri í Stekkjarási í Hafnarfirði. Sjá fundargerð.

Stjórn Faghópsins er þannig skipuð:

Fjóla Þorvaldsdóttir formaður,
Sigrún Inga Mogensen ritari,
Jóhanna Berghild Hergeirsdóttir gjaldkeri,
Michelle Sonia Horne og
Katrín Lilja Hraunfjörð meðstjórnendur.