Frestur til að skila smásögu framlengdur til 15. október

Fréttir|7. október 2020

Vegna fjölda áskorana hefur verið lengt í fresti til þátttöku í Smásagnakeppni KÍ. Þetta er sjötta árið sem efnt er til þessarar skemmtilegu keppni.

Ákveðið hefur verið að framlengja frest til að skila smásögu í Smásagnasamkeppni KÍ um þrjár vikur eða til fimmtudagsins 15. október næstkomandi. Þetta er gert vegna fjölda áskorana en vegna ástandsins er skólahald víða  ekki alveg með sama hætti og vant er, þess má þó geta að þegar hefur fjöldi smásagna borist í pósthólf keppninnar. 

Dómnefnd verður sú sama og í fyrra; hana skipa Þórdís Gísladóttir rithöfundur, Kristján Jóhann Jónsson, fyrrum dósent á Menntavísindasviði HÍ, og Bryndís Jónsdóttir frá Heimili og skóla. 

Þátttaka í keppninni hefur frá upphafi verið góð í flestum aldursflokkum og ljóst að börn og ungmenni búa yfir áhuga á skáldskap. Við hvetjum kennara á öllum skólastigum til að láta nemendur vita af keppninni og jafnvel má nýta hana í skólastarfinu.

Keppt er í fimm flokkum

  • leikskólinn
  • grunnskólinn 1. – 4. bekkur
  • grunnskólinn 5. – 7. bekkur
  • grunnskólinn 8. – 10. bekkur
  • framhaldsskólinn

Þema keppninnar er sem fyrr tengt skólanum en smásagnahöfundar hafa að sjálfsögðu frelsi í efnistökum. Gætt verður fyllstu nafnleyndar á meðan dómnefnd fer yfir sögurnar. Verðlaunasögurnar verða birtar í prentútgáfu Skólavörðunnar sem kemur út síðar í haust. Verðlaunaathöfn og sjálf verðlaunin verða kynnt síðar. 

Verðlaunahafar frá vegleg verðlaun sem kynnt verða síðar, þá verða verðlaunasögurnar prentaðar í Skólavörðunni. 

Skilafrestur er til miðnættis 15. oktbóer og ber að skila handritum á netfangið smasaga@ki.is.

Eftirfarandi þarf að hafa í huga

  • Sagan má ekki hafa birst opinberlega og ekki vera lengri en 3.000 orð.
  • Skila á sögum sem viðhengi í textaformati, til dæmis word-útgáfu (ekki pdf).
  • Sagan á að vera á íslensku
  • Sagan þarf að bera titil

Upplýsingar um höfund

  • Nafn
  • Bekkur
  • Skóli
  • Tengiliður
  • Heimilisfang og sími
  • Athugið: Ef kennarar senda margar sögur fyrir hönd nemenda sinna þá er æskilegt að senda hverja sögu í sér tölvupósti.

 

Fréttir af keppninni frá fyrri árum

Smásagnahöfundar verðlaunaðir við hátíðlega athöfn (4. október 2019)

Framúrskarandi smásagnahöfundar verðlaunaðir (5. október 2018)

Smásagnahöfundar verðlaunaðir á Alþjóðadegi kennara (5. október 2017)

KÍ verðlaunar smásagnahöfunda á Alþjóðadegi kennara (5. október 2016)

Úrslit í smásagnasamkeppninni gerð kunn (5. október 2015)

 

Verðlaunahafar frá upphafi

2019

  • Þóroddur Óskarsson, Júlíana Líf Helgadóttir og Kristófer Daði Stefánsson, leikskólanum Lyngholti á Reyaðarfirði, fyrir söguna Sóley og ofurhetjan
  • Hrafnhildur Sara Hauksdóttir, 3. bekk Varmárskóla, fyrir söguna Einhyrningur í skólanum
  • Árni Matthías Sigurðsson, 6. bekk Hraunvallaskóla, fyrir söguna Fúluhlíðarskóli
  • Eybjört Ísól Torfadóttir, 8. bekk Breiðholtsskóla, fyrir söguna Skólamótið
  • Máni Hrafn Stefánsson, Tækniskólanum, fyrir söguna Bragði sagði

 

2018

  • Jón Halldór Stefánsson, leikskólanum Álfaborg á Svalbarðsströnd, fyrir söguna Vélmennin
  • Katla Bríet Líndal Benediktsdóttir, 2. bekk Grunnskóla Þórshafnar, fyrir söguna Vandræðalegi skóladagurinn
  • Margrét Þrastardóttir, 7. bekk Vatnsendaskóla, yrir söguna Dúfurnar
  • Rakel Björk Heimisdóttir, 8. bekk Víðistaðaskóla, fyrir söguna Tveir skrýtnir skóladagar
  • Guðrún Elena Magnúsdóttir, Menntaskólanum við Hamahlíð, fyrir söguna Skólinn hefur drepið mig. Ég hef verið myrt af minni eigin menntun

2017

  • Börn í leikskólanum Skýjaborg (árgangur 2012) í Hvalfjarðarsveit fyrir söguna Kennarinn með blað í fanginu
  • Kjartan Kurt Gunnarsson, 1. bekk Grunnskóla Þórshafnar, fyrir söguna Ofurkennari minn
  • Heiðrún Vala Hilmarsdóttir, 5. bekk Hraunvallaskóla, fyrir söguna Barnalegi kennarinn
  • Elísa Sverrisdóttir, 10. bekk Foldaskóla, fyrir söguna Hringrás
  • Dagný Ásgeirsdóttir, nemi í Menntaskólanum Tröllaskaga, fyrir söguna Kennarinn

2016

  • Börnin í Hulduheimum í leikskólanum Fífuborg í Grafarvogi fyrir söguna Mannasaga
  • Guðlaugur Heiðar Davíðsson, nemandi í 4. bekk Hamraskóla í Reykjavík, fyrir söguna Kennarabófi
  • Eyþór Ingi Brynjarsson, nemandi í 6.–EÓS í Holtaskóla í Reykjanesbæ fyrir söguna Nýi kennarinn í Litlahól
  • Guðný Salvör Hannesdóttir, nemandi í 8. bekk Laugalandsskóla í Holtum, fyrir söguna Áhugaverður álfakennari
  • Bryndís Bolladóttir, nemandi í Borgarholtsskóla, fyrir söguna Hún kenndi mér allt sem ég kann – sigursaga þyrnidansara í þunglyndi

2015

  • Kjartan Kurt Gunnarsson, nemandi í leikskólanum Barnabóli á Þórshöfn, fyrir söguna Kennari minn
  • Ásdís Einarsdóttir, nemandi í Öxarfjarðarskóla, fyrir söguna Kennaradraugarnir
  • Marta Ellertsdóttir, nemandi í Garðaskóla, fyrir söguna Emelía og kennarinn
  • Dagný Gréta Hermannsdóttir, nemandi í Menntaskólanum í Kópavogi, fyrir söguna Bananabrauð