Frestur til að sækja um styrk úr Fræðslu- og kynningarsjóði er til 28. febrúar

Fréttir|15. febrúar 2022

Eitt af grunnmarkmiðum sjóðsins er að styrkja menntunarátak starfandi félagsmanna FG með leyfisbréf til grunnskólakennslu til að afla sér fyrstu meistaragráðu.

Félag grunnskólakennara hefur frá árinu 2016 styrkt þann hóp, sem útskrifaðist með fullgild starfsréttindi til kennslu, leyfisbréf eftir B.ed nám til kennsluréttinda fram til ársins 2014, til að afla sér fyrstu meistaragráðu í íslenskum háskóla og hefur styrkurinn hefur verið greiddur að afloknu námi. Styrkurinn á ekki við þá sem ljúka 5 ára námi til meistaragráðu og leyfisbréfs grunnskólakennara.

Í Fræðslu- og kynningarsjóði, sem gengur undir nafninu 1% sjóðurinn, er opið fyrir umsóknir til fyrstu meistaragráðu til 1. mars og 1. september ár hvert. Styrkir eru veittir í kjölfarið í apríl og október. Fresturinn rennur því út í lok þessa mánaðar.

Hér má nálgast allar upplýsingar um hvað er styrkhæft og hvaða gögnum þarf að skila inn.