Frestur til að kjósa í formanns- og stjórnarkjörfi FF framlengdur

Fréttir|22. janúar 2026

Kjörstjórn FF hefur ákveðið að framlengja frest til að greiða atkvæði um formann og stjórn félagsins til mánudagsins 9. maí.

Frestur til að greiða atkvæði í kosningum um formann og stjórn Félags framhaldsskólakennara hefur verið framlengdur til klukkan 14 á mánudag, 9. maí. Ástæðan er sú að bilun í tölvukerfi varð þess valdandi að Mínar síður lágu niðri í nokkrar klukkustundir í morgun. 

Kjörsókn í formannskjörinu var 47 prósent í hádeginu og 42 prósent í stjórnarkjörinu. 

 

Um atkvæðagreiðsluna

Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á www.ki.is. Kjósendur þurfa að skrá sig inn á Mínar síður með Íslykli eða Rafrænum skilríkjum.

Þegar komið er inn á Mínar síður sjást tvennar kosningar.

  • Kosning til formanns FF 2022 – Merktu við þann frambjóðanda sem þú vilt kjósa sem formann FF.
  • Kosning til stjórnar FF 2022 - Merktu við þá fjóra frambjóðendur sem þú vilt kjósa í stjórn FF.

Smelltu að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.

Ef þú vilt fresta því að greiða atkvæði skaltu smella á: Hætta við kosningu.

Hægt er að kjósa aftur, með því ógildist fyrri kosning. Hver kennitala skilar einungis síðasta greidda atkvæði.

Athygli skal vakin á því að samkvæmt starfsreglum kjörstjórnar er einungis hægt að kjósa 4 í stjórn félagsins, hvorki fleiri né færri.

Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna eru veittar á skrifstofu KÍ en starfsmaður kjörstjórnar er Fjóla Ósk Gunnarsdóttir, netfang: fjola@ki.is, sími: 595 1111.

Tveir eru í framboði til formanns FF

Þrettán bjóða sig fram til stjórnar

  • Baldvin Björgvinsson, Fjölbrautaskólanum í Breiðholti
  • Guðmundur Arnar Guðmundsson, Verkmenntaskóla Austurlands
  • Guðmundur Björgvin Gylfason, Fjölbrautaskóla Suðurlands
  • Gunnar Hólmsteinn Ársælsson, Fjölbrautaskólanum í Garðabæ
  • Heimir Björnsson, Flensborgaskólanum í Hafnarfirði
  • Helga Jóhanna Baldursdóttir, Tækniskólanum
  • Jóhanna Björk Guðjónsdóttir, Kvennaskólanum í Reykjavík
  • Óli Njáll Ingólfsson, Verzlunarskóla Íslands
  • Sandra Hlín Guðmundsdóttir, Borgarholtsskóla
  • Sigrún Lilja Guðbjörnsdóttir, Menntaskólanum við Sund
  • Simon Cramer Larsen, Fjölbrautaskóla Suðurnesja
  • Sólveig Ebba Ólafsdóttir, Menntaskólanum í Kópavogi
  • Steindóra Kristín Þorleifsdóttir, Framhaldsskólanum í Mosfellsbæ
  • Skoða kynningarefni frambjóðenda til stjórnar