Frestur til að kjósa framlengdur um sólarhring
Fréttir|8. nóvember 2021

Kjörstjórn KÍ hefur bætt við sólarhring í formannskjöri sambandsins. Félagsmenn geta greitt atkvæði til klukkan 14 á morgun, þriðjudag.
Kjörstjórn KÍ ákvað skömmu fyrir hádegi að lengja tímann sem félagsmenn hafa til að taka þátt í formannskjöri Kennarasambandsins. Bætt verður við sólarhring og því verður atkvæðagreiðslan opin til klukkan 14 á morgun, þriðjudaginn 9. nóvember.
Til stóð að atkvæðagreiðslu lyki klukkan 14 í dag en bilun kom upp á Mínum síðum í morgun með þeim afleiðingum að félagsmenn komust illa inn í kosningakerfið. Kosningakerfið er komið í lag en gera má ráð fyrir að kerfið virki hægt áfram og þeim sem gengur illa að greiða atkvæði er bent á að reyna aftur síðar.
Kjörsókn var 48.45% klukkan 12 í dag.