Frestur til að bjóða sig fram í trúnaðarstörf FL framlengdur

Fimmtán framboð hafa borist í trúnaðarstörf Félags leikskólakennara. Hægt er að bjóða sig fram í skólamálanefnd, framboðsnefnd og kjörstjórn til hádegis, þriðjudaginn 27. janúar. Stjórn og samninganefnd eru fullskipuð. Formaður var sjálfkjörinn.
Þrettán framboð hafa borist í stjórn og trúnaðarstörf fyrir Félag leikskólakennara (FL) en formlegur framboðsfrestur rann út á miðnætti aðfaranætur mánudagsins 12. janúar.
Stjórn og samninganefnd eru fullskipuð. Haraldur F. Gíslason var sjálfkjörinn í embætti formanns næstu fjögur árin, eða frá 2026-2030. Áfram verður hægt að bjóða sig fram í framboðsnefnd, skólamálanefnd og kjörstjórn FL, eða til klukkan 12.00 á hádegi, þriðjudaginn 27. janúar. Kosið verður í embættin á aðalfundi félagsins.
Stjórn
Eftirfarandi fjórir fulltrúar, auk formanns, skipa stjórn Félags leikskólakennara á næsta kjörtímabili:
- Anna Lydía Helgadóttir
- Helga C. Reynisdóttir
- Jóhanna Stella Oddsdóttir
- Sveinlaug Sigurðardóttir
Samninganefnd
Eftirfarandi fimm fulltrúar, auk stjórnar, skipa samninganefnd Félags leikskólakennara á næsta kjörtímabili:
- Eydís Elva Guðmundsdóttir
- Hanna Berglind Jónsdóttir
- Helga C. Reynisdóttir (í stjórn)
- Linda Ósk Sigurðardóttir
- Lóa Björk Hallsdóttir
- Sigríður Clausen
Önnur trúnaðarstörf
Kosið er í framboðsnefnd, kjörstjórn og skólamálanefnd á aðalfundi félagsins. Hægt er að bjóða sig fram í framangreindar nefndir til hádegis, þriðjudaginn 27. janúar. Eftirfarandi framboð hafa þegar borist:
Skólamálanefnd
Átta fulltrúar skipa skólamálanefnd FL; fjórir aðalfulltrúar og fjórir varafulltrúar. Í framboði eru (í stafrófsröð):
- Ásbjörg Valgarðsdóttir
- Guðrún Ásta Friðbertsdóttir
- Sigrún Unnur Einarsdóttir
Framboðsnefnd
Sex fulltrúar sitja í framboðsnefnd FL; þrír aðalfulltrúar og þrír varafulltrúar. Engin framboð hafa borist sem stendur.
Kjörstjórn
Sex fulltrúar skipa kjörstjórn FL; þrír aðalfulltrúar og þrír varafulltrúar. Í framboði er:
- Lóa Björk Hallsdóttir
Framboð
Þau sem hyggjast bjóða sig fram í framboðsnefnd, kjörstjórn eða skólamálanefnd Félags leikskólakennara, þar á meðal þau sem sækjast eftir endurkjöri, skulu senda tilkynningu um framboð á netfangið flframbod@ki.is. Í tilkynningu skal tiltaka nafn, kennitölu, vinnustað og í hvaða embætti boðið er fram í – og endilega láta mynd fylgja.