Frelsið það besta við starfið

„Ég er náttúrlega bara búin að njóta þess að vera syngjandi síðan ég kom inn á yngstu deild,“ segir Dröfn Traustadóttir kennari og deildarstjóri á leikskólanum Uglukletti í Borgarnesi.
Skólavarðan náði tali af Dröfn þegar Hringferð KÍ kom við í Borgarnesi. Dröfn hefur starfað við Ugluklett í 16 ár. Hún er kennari og hefur nýlega tekið við sem deildarstjóri yngstu deildar, Skessuhorns.
Dröfn fór óhefðbundna leið að kennarastarfinu. Eftir um sex ár í starfi ákvað hún að fara í nám með starfinu, þá 43 ára. „Ég byrjaði bara á núlli fyrir tíu árum. Fer í menntaskólann til að vinna mér inn einingar; fer svo í leikskólaliðann; og fer svo í raunfærnimat og fæ einingar þar líka þannig að þá kemst ég inn í háskólann,“ útskýrir Dröfn.
Átta árum eftir að hún hóf námið var Dröfn útskrifuð með B.Ed. og M.T. í leikskólakennara-fræðum. Og hún er hvergi nærri hætt, heldur er nú nemi í viðbótardiplómu í foreldrafræðslu og uppeldisráðgjöf.
Augun opnast í náminu
Hún segir margt hafa breyst og vera öðruvísi við kennsluna fyrir og eftir menntun. „Augun opnast fyrir svo mörgum hlutum og maður er meðvitaðri um svo margt sem maður hafði ekki hugmynd um áður.“
Ég held að það sé mest aðkallandi að hafa umhverfið nógu gott
Áður en Dröfn tók við yngstu deildinni vann hún með elstu krökkunum. Það sama gildir um flutninga milli deilda; margt er ólíkt við starfið. „Það er ekki hægt að segja að annað sé auðveldara eða erfiðara. En það er rosalega ólíkt,“ segir hún.
Það sé til dæmis meiri vinna við undirbúning og oft meira námsefni sem þarf að komast yfir á meiri hraða með elstu krökkunum. Svo eru samskiptin ólík að sjálfsögðu. „Ég er náttúrlega bara búin að njóta þess að vera syngjandi síðan ég kom inn á yngstu deild. Mér finnst gaman að syngja og þar nýtur maður sín alveg mjög mikið í því.“
Sjálfstæð vinnubrögð í fyrirrúmi
Á Uglukletti er unnið með opið dagskipulag og flæði haft í fyrirrúmi. Það þýðir að börnin fá til að mynda að velja sér hvað þau vilja gera yfir daginn, til dæmis að vera á útistöð eða að syngja
og spila á tónastöð og þar fram eftir götunum.
Dröfn, sem segir tónlistarstöðina og listakrókinn vera í sérlegu uppáhaldi, finnst fyrirkomulagið henta sér afar vel. „Fyrir mér er sérstaða skólans sú að ég fæ að vera rosa mikið á mínum forsendum og stjórna því hvernig ég vinn. Mér er treyst og við erum ekki á klukkunni. Yfirleitt þegar ég hef komið með hugmyndir er mjög vel tekið í þær.“

Aðspurð um kosti og galla þess að vinna í flæði segist Dröfn ekki lengur sjá neina galla við kerfið, aðeins kosti. „Einhvern tímann hefði mér örugglega þótt kostir og gallar, en þegar maður er búinn að læra inn á þetta þá finnst mér þetta bara æðislegt að geta haft þetta svona.“
Best að starfa með börnum
Aðspurð um hvað sé best við kennarastarfið svarar Dröfn: „Það er bara að fá að vera innan um börn. Þau eru náttúrlega bara skemmtilegust. Og að fá að þróa sig áfram með þeim, að við getum þróað okkur saman. Mér finnst þetta frelsi í leikskólakennarastarfinu það besta.“
En hver er þá helsta áskorunin? „Við erum alltaf að reyna að efla lýðræði hér á Uglukletti. Mér hefur fundist það að reyna að gera þau meðvituð um lýðræði ein helsta áskorunin,“ útskýrir hún. Sem og að ganga úr skugga um að hver og einn fái að njóta sín. „Það er svona áskorunin, að við getum verið með nógu marga bolta á lofti fyrir alla, þannig að allir njóti sín.“
Að lokum er Dröfn spurð út í hvað brenni á henni varðandi kennarastarfið, stéttina og kjörin. „Starfsumhverfið er ekki gott. Það þarf að bæta það. Mér finnst vanta fleira fólk eða meira rými. Eða bæði. Til þess að geta unnið svona þá byggir það á því að við séum nógu mörg til að valda því.“ Þegar það bregst geti verið stutt í kulnun í starfi. „Ég held að það sé mest aðkallandi að hafa umhverfið nógu gott.“

Kristín Gísladóttir skólastjóri og Dröfn Traustadóttir deildarstjóri
Aðeins um Ugluklett
Tæplega áttatíu börn eru á leikskólanum Uglukletti í Borgarnesi. Sendi-nefnd KÍ var boðið í heimsókn í leikskólann þegar Hringferðalangarnir voru staddir fyrir vestan.
Kristín Gísladóttir skólastjóri tók vel á móti nefndinni og fór yfir hugmyndafræðina sem starfað er eftir í skólanum; hugmyndir jákvæðrar sálfræði og kenningar Mihaly Csikszentmihalyi um flæði.
Þar er ekki unnið eftir „klukkunni“ heldur starfað eftir opnu dagskipulagi sem þýðir að börnin hafa áhrif á daginn sjálf, ráða því hvaða viðfangsefni þau velja sér og hversu lengi þau eru á hverjum stað, eins og útskýrt er á heimasíðu skólans.